Irving Oil skoðar aftur olíurekstur hér 16. maí 2011 05:00 Einn viðmælenda Fréttablaðsins í gær sagði öll olíufyrirtækin hér föl fyrir rétt verð um þessar mundir. Fréttablaðið/Hörður
Forsvarsmenn kanadíska olíufyrirtækisins Irving Oil eru staddir hér á landi. Eftir því sem næst verður komist er tilgangur heimsóknarinnar að funda með stjórnendum íslenskra olíufélaga og kynnast rekstri þeirra. Ekki er talið útilokað að þeir kaupi N1 eða Skeljung en bæði fyrirtækin eru í skyldum rekstri og Irving Oil í Kanada. Fjárhagsleg endurskipulagning N1 hefur staðið yfir um nokkurt skeið og er stefnt að því að ljúka henni í sumar. Fyrir rúmum mánuði var tilkynnt um drög að samkomulagi á milli eigenda fyrirtækisins og kröfuhafa sem felur í sér að helstu lánardrottnar og eigendur skuldabréfa félagsins, Arion banki, Íslandsbanki og lífeyrissjóðir, taki olíuverslunina yfir. Skeljungur hefur upp á síðkastið selt frá eignir, þar á meðal höfuðstöðvarnar í Reykjavík og ýmis verkstæði. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, kannaðist ekki við fyrirhuguð fundarhöld með forsvarsmönnum Irving Oil þegar hann var inntur eftir þeim í gær. Ekki náðist í Einar Örn Ólafsson, forstjóra Skeljungs. Irving Oil hefur í rúm sautján ára skeið haft hug á að hefja hér rekstur olíuverslunar, reisa hér birgðastöð og selja eigin olíu. Fyrirtækið hafði tryggt sér lóðir á nokkrum stöðum í Reykjavík, svo sem í Sundahöfn árið 1995. Stjórnendur olíufélaganna þriggja, Esso (nú N1), Olís og Skeljungur brugðust hart við og mótmæltu áformunum. Niðurstaðan varð sú að forsvarsmenn Irving Oil drógu í land. Forsvarsmenn Irving Oil hafa nokkrum sinnum borið víurnar í rekstur hér síðan þá og síðan í byrjun árs 2000 hefur félagið Irving smurolíur á Íslandi verið með starfsemi hér á landi í tengslum við innflutning á smurolíum undir eigin nafni. Irving Oil var stofnað í Nýju-Brunswick í Kanada árið 1924 og hefur félagið frá upphafi verið í eigu hinnar vellauðugu Irving-fjölskyldu. Fyrirtækið á í dag ráðandi hlut í um þrjú hundruð fyrirtækjum í olíuiðnaði, olíuhreinsun, smásöluverslun, iðnaði og fjölmiðlum. Þá rekur félagið um tvö þúsund bensínstöðvar á austurströnd Kanada. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Sjá meira