Landsvirkjun réð 60 manns án auglýsinga á 10 árum 16. febrúar 2011 09:41
Frá árinu 2000 til síðustu áramóta hefur Landsvirkjun ráðið 60 starfsmenn til starfa án þess að stöður þeirra hafi verið auglýstar. Alls hefur verið ráðið í 170 störf hjá Landsvirkjun á þessu tímabili. Af þeim voru 98 auglýst bæði utan og innan húss en 12 stöður voru eingöngu auglýstar innanhúss. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur þingmanns hreyfingarinnar á Alþingi um starfsmannahald Landsvirkjunar. Margrét spurði m.a. hversu mörg störf hafa verið auglýst hjá Landsvirkjun frá árinu 2000 og hverjir voru ráðnir í þau störf? „Á framangreindu tímabili var ráðið í 170 störf, þar af voru 98 störf auglýst bæði utan húss og innan og 12 innan húss. Þá er á meðfylgjandi yfirliti ekki getið um ráðningar í tímabundin störf og sumarstörf námsfólks enda eru sumarstörfin einnig tímabundin. Sumarstörfin eru þó almennt auglýst á vef fyrirtækisins," segir í svarinu. Þá vildi Margrét vita hvort einhverjir hefðu verið ráðnir án auglýsingar á framangreindu tímabili og þá hverjir? „Á tímabilinu hafa 60 einstaklingar verið ráðnir án auglýsingar, svo sem fram kemur í meðfylgjandi yfirliti. Sú aðferð brýtur ekki í bága við starfsreglur stjórnarinnar, sbr. áður tilvitnaða grein 11.9. Rétt er að taka fram að frá miðju ári 2008 var verklagi við ráðningar breytt á þann hátt að allar lausar stöður eru auglýstar a.m.k. innan húss," segir í svarinu. Í tilvitnaða grein 11.9, segir um ráðningar í störf hjá fyrirtækinu: „Forstjóri ræður starfsmenn til fyrirtækisins, segir þeim upp og semur við þá um launakjör. Forstjóri skal þó hafa samráð við stjórnarformann um ráðningu og uppsögn framkvæmdastjóra einstakra sviða Landsvirkjunar."
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira