Stella: Ætlum að taka stóra titilinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. mars 2011 16:15
Stella Sigurðardóttir er komin á gott skrið með liði Fram í N1-deild kvenna eftir að hafa verið frá í nokkrar vikur vegna axlarmeiðsla. Stella missti til að mynda af lokakeppni EM í Danmörku vegna meiðslanna en fékk sárabót þegar að hún varð bikarmeistari með sínu liði í febrúar eftir sigur á Val í úrslitaleiknum. „Þetta hefur gengið vel hjá mér. Ég hef verið dugleg í endurhæfingunni og er að koma sterk til baka,“ sagði Stella en sjá má viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan. Á morgun hefst úrslitakeppnin og mætir Fram liði Stjörnunnar í fyrstu umferð. Fram missti af deildartitlinum eftir að hafa tapað fyrir Val með átta marka mun í næstsíðustu umferðinni. „Við ákváðum að gleyma þessum leik enda var hann lélegur af okkar hálfu. Við ákvðum að vera frekar glaðar og kátar á æfingum,“ sagði Stella. Margir reikna með að Valur og Fram muni eigast við í lokaúrslitunum en Stella segir að leikmenn Fram séu með einbeitinguna í lagi fyrir rimmuna gegn Stjörnunni. „Þetta verða mjög erfiðir leikir. Við unnum báða leikina gegn Stjörnunni í vetur en bara með einu marki. Við munum fyrst hugsa um Val ef þessi lið munu svo mætast í úrslitunum og okkur hefur gengið ágætlega að einbeita okkur að Stjörnunni.“ „Við ætlum okkur samt að taka stóra titilinn.“
Olís-deild kvenna Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Sjá meira