Ætla að selja Norðurlandabúum 150 Raf-Rovera Valur Grettisson skrifar 23. mars 2011 14:45 Raf-Roverinn E-Range.
Fyrirtækið Northern Lights Energy (NLE) hefur gert samning við breskt framleiðslufyrirtæki um sölu á 150 rafbílum af gerðinni Range Rover, eða E-Range. Fyrirtækið gerði samning við Liberty Electric Cars, sem er staðsett í Oxford í Bretlandi. Samningurinn hljóðar upp á 24 milljónir punda eða um fjóra og hálfan milljarða króna. „Flestir bílarnir verða seldir á Norðurlöndunum," segir Sighvatur Lárusson, einn af eigendum og stofnandi NLE, um samninginn. Aðspurður segist hann ekki vita hversu margir bílar verða fluttir hingað, ef einhverjir. Ef þingsályktunartillaga iðnaðarráðherra um endurgreiðslu á virðisaukaskatti bílanna, verður að veruleika, þá mun Raf-Roverinn kosta á bilinu 25 til 30 milljónir íslenskra króna. Að sama skapi mun kaupandinn spara gríðarlega háum fjárhæðum í eldsneytiskostnað, í það minnsta hér á landi. Sighvatur segir bílinn lúxuskerru og gefi bensínbílnum ekkert eftir. Þannig verður hægt að aka 320 kílómetra á hleðslunni auk þess sem bíllinn verður mjög kraftmikill. Sighvatur bendir á að í Danmörku kostar bensínútgáfan af bílnum allt að 60 milljónir króna. Bílarnir 150 verða fluttir til Norðurlandanna á næstu fjórum árum. „Það hafa verið að seljast 50 bílar í Danmörku og Noregi á ári hverju," segir Sighvatur en þeir ætla einnig að freistast til þess að selja Færeyingum Raf-Roverana. Sighvatur er ánægður með þá þróun sem hefur átt sér stað í rafbílavæðingu á Íslandi. Hann vill þó að það verði gefið enn meira í, ef svo má að orði komast, en í Noregi hafa stjórnvöld meðal annars tekið ákvörðun um að 200 þúsund rafbílar verði á götum Noregs árið 2020. Hann vill sjá slíka skuldbindingu hjá íslenskum stjórnvöldum, en er þó sáttur við þau skref sem þegar hafa verið tekin, og vilyrði eru um að taka.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira