Nýr samningur sparar Landspítalanum 8 milljónir á ári 23. mars 2011 14:04
Björn Zoëga forstjóri Landspítalans segir að nýr samningur við Íslandsbanka muni spara spítalanum 8 milljónir kr. á ári. Samningurinn var undirritaður í hádeginu. Í tilkynningu segir að Landspítali hafi gert samning við Íslandsbanka um banka- og innheimtuþjónustu spítalans, á grundvelli útboðs Ríkiskaupa sem opnað var í desember 2010. Það eru nýmæli að ríkisstofnun bjóði út alla bankaþjónustu og er Landspítali þannig að ryðja braut sem ætti að koma öðrum stofnunum að gagni. Um er að ræða nánast öll bankaviðskipti og tengda þjónustu svo sem innlánsviðskipti á tékkareikningum og skammtímabankareikningum, útlánsviðskipti, aðgang að fyrirtækjabanka ásamt bankaþjónustu vegna ýmissa sérsjóða sem fjármálasvið Landspítala heldur utan um. Ennfremur nær samningurinn til þjónustu, gjaldskrár og greiðsluskila vegna innheimtukrafna Landspítala. Íslandsbanki mun einnig veita spítalanum reglulega upplýsingar er varða hagspár, vaxtaþróun, gengisþróun erlendra gjaldmiðla og ávöxtunarmöguleika. Samningurinn var undirritaður af Birni Zoëga forstjóra Landspítala og Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka í K-byggingu Landspítalans. „Þetta er tímamótasamningur fyrir Landspítalann sem mun skila um 8 milljóna króna hagræðingu á þessu ári og enn meiri á næsta ári. Samningurinn er þannig liður í því að reyna að hagræða alls staðar í starfsemi spítalans á erfiðum tímum,” segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítala. „Við hjá Íslandsbanka hlökkum til samstarfsins við Landspítalann. Landspítalinn er stærsti vinnustaður landsins og hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum síðustu misseri. Þetta útboðsferli sýnir að stjórnendur spítalans takast á við þær áskoranir á afar faglegan hátt,” segir Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka.
Mest lesið Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Ekki ýkja mörg hótelherbergi til skiptanna á landsbyggðinni Viðskipti innlent Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira