Viðskipti innlent

Eignir tryggingarfélaga 136 milljarðar í árslok

Heildareignir tryggingarfélaga námu 136,2 milljörðum kr. í lok desember og hækkuðu um 575 milljónir kr. á milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að handbært fé lækkaði um 1,3 milljarða kr. og nam 9,6 milljarða kr.

Útlán og markaðsverðbréf námu rúmlega 87 milljörðum kr. og lækkuðu lítillega á milli mánaða eða um 43 milljónir kr. Aðrar eignir námu 30,7 milljörðum kr. og hækkuðu um 1,5 milljarða kr.

Skuldir tryggingarfélaga námu rúmlega 78 milljörðum kr. og eigið fé nam rúmum 58 milljarða kr. og hækkaði um 1,2 milljarða kr. í lok desember.

Tölur fyrir desembermánuð eru bráðabirgðatölur og geta breyst.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×