Loksins hefur rafræna veiðidagbókin í Breiðdalsá komist í lag eins og sjá má vefnum hjá www.strengir.is . Og veiðin er komin yfir 300 laxa og að langmestu leyti vænn tveggja ára lax sem hefur veiðst enn, á bilinu 70-85 cm og í áberandi góðum holdum þetta sumarið. En allar nánari upplýsingar má nú sjá daglega uppfærðar í veiðibókinni og verður svo til 30. september er veiði líkur. Verður spennandi að sjá hvort smálaxinn komi ekki af krafti á næstunni, en allavega voru 5 laxar af 15 löxum sem veiddust í gær hængar um 60 cm sem eru líklega örugglega smálax eftir eitt ár í sjó.
Og Jöklusvæðið ætlar að koma inn með stæl og þar eru komnir strax rúmlega 100 laxar sem þykir mikið þar á þessum tíma. Veiðin hefur verið dreifð í hliðarám Jöklu og einnig í Fögruhlíðará síðustu daga, en ekki síður í Jöklu sjálfri sem rennur nú blátær til sjávar og er með um 20-25 m ³ rennsli að jafnaði. Ekki er útlit fyrir yfirfall fyrr en í september en þá eru Kaldá, Fossá og Laxá og auðvitað nálægð Fögruhlíðará alltaf veiðanlegar svo veiðivon minnkar ekki mikið þrátt fyrir það.
Birt með góðfúslegu leyfi Strengja
