Spáir óbreyttum stýrivöxtum 18. apríl 2011 09:35
Greining Íslandsbanka spáir því með því að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum sem er á miðvikudaginn kemur. Verða vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana því áfram í 3,25% og hámarksvextir 28 daga innistæðubréfa í 4,00%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga í 4,25% og daglánavextir 5,25%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að síðasta vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar var 16. mars síðastliðinn og hélt nefndin stýrivöxtum bankans þá óbreyttum. Í yfirlýsingu vegna ákvörðunarinnar sagði nefndin að þar sem horfur eru á að verðbólga verði áfram við verðbólgumarkmiðið og í ljósi þess að vextir eru í sögulegu lágmarki ríkir aukin óvissa um í hvaða átt næstu vaxtabreytingar verða. Frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndar Seðlabankans hefur verðbólgan aukist nokkuð. Fór hún úr 1,9% í 2,3% á milli febrúar og mars síðastliðinn. Gæti verðbólgan farið enn hærra nú í apríl eða upp í 2,5-2,6%. „Skýrist þetta aðallega af mikilli hækkun hrávöru- og olíuverðs á alþjóðamörkuðum. Þetta ætti þó ekki að hafa neikvæð áhrif á verðbólguhorfur til lengri tíma á meðan verðbólguvæntingar og launaþróun verða ekki fyrir áhrifum af hækkununum. Þrátt fyrir aukna verðbólgu nú reiknum við með því að verðbólgan verði í grennd við verðbólgumarkmið bankans litið til næstu mánaða. Því er um tímabundna aukningu í verðbólgu að ræða,“ segir í Morgunkorninu. „Slaki í þjóðarbúskapnum og hækkun á gengi krónunnar undanfarið ár stuðla að lágri verðbólgu um þessar mundir. Þá reiknum við með að niðurstaða í yfirstandandi kjarasamningum muni ekki breyta þessum horfum. Horfur eru á því að verðbólgan verði fremur lág út þetta ár og það næsta að því tilskyldu að gengi krónunnar haldist stöðugt og að eitthvert lát verði á verðhækkun hrávöru og eldsneytis erlendis. Gengi krónunnar er nú nær það sama og það var á síðasta vaxtaákvörðunarfundi nefndarinnar í mars síðastliðnum. Virðist sú lækkunarhrina sem einkenndi fyrstu vikur ársins hafa stöðvast enda mátti telja líklegt að þar væru tímabundnir þættir að verki er tengdust m.a. talsverðum inngripum Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði undir lok síðastliðins árs og árstíðarbundnum sveiflum á gjaldeyrisflæði til landsins.“
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira