Hoffenheim lagði topplið Dortmund - Robben með fernu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. mars 2011 16:39 Robben skoraði fjögur í dag. Nordic Photos / Bongarts
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar unnu í dag virkilega góðan sigur á toppliði þýsku úrvalsdeildarinnar, Dortmund, 1-0 á heimavelli. Vedad Ibisevic skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu en Gylfi kom inn á sem varamaður fyrir hann þegar lítið var eftir af leiknum. Þetta var aðeins þriðja tap Dortmund á leiktíðinni en liðið er engu að síður með 61 stig og tólf stiga forystu á toppi deildarinnar. Leverkusen getur minnkað forystuna í níu stig með sigri á Mainz á útivelli á morgun. Bayern gerði sér lítið fyrir og slátraði Hamburg, 6-0. Arjen Robben skoraði fjögur fyrstu mörk Bayern í leiknum á 24 mínútna kafla í leiknum. Thomas Müller skoraði svo fimmta markið á 79. mínútu og en sjötta markið var sjálfsmark. Bayern er í fjórða sæti deildarinnar með 45 stig en Hoffenheim er nú í því níunda með 36 stig. Eyjólfur Sverrisson, aðstoðarþjálfari Wolfsburg, fylgdist með sínum mönnum tapa í dag fyrir Nürnberg á heimavelli, 2-1. Wolfsburg situr í fallsæti með 26 stig en liðið hefur tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni.Úrslit dagsins: Hoffenheim-Dortmund 1-0 Bayern - Hamburg 6-0 Kaiserslautern - Freiburg 2-1 Schalke - Frankfurt 2-1 Wolfsburg - Nürnberg 1-2
Þýski boltinn Mest lesið Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Handbolti Segir pabba hafa hlaupið á sig Sport Uppgjörið: Grindavík - Valur 93-67 | Grindvíkingar skelltu í lás Körfubolti Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Handbolti Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Handbolti „Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Handbolti Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn „Höfum beðið eftir þessu alla úrslitakeppnina“ Körfubolti Fleiri fréttir Eina þjóðin sem kom ekki á ársþing FIFA en með á HM Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Sagan með Val en KR á flugi Uppgjörið: Þróttur R. - FH 2-1 | Sætur sigur Þróttara Gætu endað í þyrlu til Eyja Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Klúðraði þremur vítum og var síðan rændur sigurmarki Liðsfélagi Stefáns og Alfons kveikjan að risastóru dómsmáli Ronaldo lenti í hörkurifrildi í toppslagnum Mainoo áfram í Manchester næstu árin Mikil spenna á Akureyri og miðum fjölgað: „Gríðarleg eftirspurn“ Hemmi og Óskar hituðu upp fyrir stórleikinn Óvenjuleg hárgreiðsla Kristals verði til þess að fólk vanmeti hann Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Írönum vísað úr landi fyrir ársþing FIFA Sjáðu vafasömu vítadómana sem gerðu Arteta „brjálaðan“ Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sjá meira
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 2-1| Nýliðarnir með dramatískan sigur í fyrsta heimaleiknum Íslenski boltinn