Helmingur hagnaðar Íslandsbanka vegna afsláttar á lánasafni Þorbjörn Þórðarson skrifar 7. mars 2011 18:30
Þrjátíu milljarða króna hagnaður Íslandsbanka á síðasta ári, sem er meiri hagnaður en 2007, má að mestu skýra af endurmati á lánum sem bankinn fékk með miklum afslætti frá þrotabúi Glitnis. Íslandsbanki birti afkomu sína fyrir síðasta ár fyrir helgi en bankinn hagnaðst um 29,4 milljarða króna eftir skatta. Þetta er meira en hagnaður Glitnis á góðærisárinu 2007 þegar bankinn skilaði 27,7 milljarða króna hagnaði eftir skatta. Þess má svo til gamans geta að hagnaður Íslandsbanka í fyrra er næstum því jafn há fjárhæð og samninganefnd Íslands í Icesave telur að lendi á íslenska ríkinu vegna reikninganna en það eru 32 milljarðar króna. Þegar rýnt er í ársreikninginn sést að hagnaðinn má að mestu skýra af vaxtamun og breytingum á verðmati á lánasafni bankans. Í skýringum með ársreikningnum segir að stór hluti lánanna hafi verið keyptur með miklum afslætti en þar er vísað til verðmats á eignum sem færðar voru til Íslandsbanka frá Glitni eftir hrunið þegar stofnaður var nýr banki á grunni innlendrar starfsemi bankans. Í ársreikningnum kemur fram að fjórtán og hálfur milljarður króna af hagnaðinum skýrist af endurmati á lánasafninu, þ.e útlánum bankans. Af því eru tveir milljarðar króna í lánum til einstaklinga og tólf og hálfur milljarður í útlánum til fyrirtækja. Á mannamáli þýðir þetta að bankinn er að fá miklu meira greitt af útlánum en talið var að yrði raunin þegar lánin voru færð frá Glitni til Íslandsbanka eftir hrunið. Velta má fyrir sér í þessu ljósi hvort svigrúm bankans til afskrifta sé ekki meira úr því að stærstur hluti hagnaðarins skýrist af endurmati á útlánum. Fyrir erlendum kröfuhöfum bankans var ein leið að ná til baka þeim fjármunum sem þeir töpuðu í hruninu að eignast hlut í Íslandsbanka, en erlendir kröfuhafar Glitnis eiga 95 prósenta hlut í bankanum. Með því „leiðréttist" í raun afslátturinn sem var veittur þegar lánin voru færð yfir, ef svo má að orði komast. Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka er stödd erlendis og gat því ekki veitt fréttastofu viðtal. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira