Óttast að gosið í fyrra fæli frá í ár 4. febrúar 2011 11:00 Svæðisstjóri Norður-Evrópumarkaðar hjá þýsku ferðaskrifstofunni Wolters óttast að síðbúin áhrif ógnvænlegra mynda frá gosinu í Eyjafjallajökli fæli hluta ferðamanna frá því að koma hingað. Fréttablaðið/GVA
Blikur eru á lofti hvað varðar ferðamannastraum til Íslands frá Evrópu og þá sér í lagi Þýskalandi, verði ekki brugðist sérstaklega við. Þetta segir Ole Nysetvold, svæðisstjóri Norður-Evrópumarkaðar hjá þýsku ferðaskrifstofunni Wolters Reisen. Ole Nysetvold segir vel hafa tekist til í kynningu í umróti síðustu ára, bæði bankahruni og í fyrstu viðbrögðum við gosinu í Eyjafjallajökli. „Ég hef hins vegar áhyggjur af nýhöfnu ári,“ segir hann. „Við horfum nú fram á síðbúin áhrif af neikvæðri umræðu um öskufall og slíkt.“ Bankahrunið hafi verið auðveldara viðfangs og jafnvel hjálpað ferðaiðnaðinum, því þeim fréttum hafi jafnan fylgt fallegar myndir af náttúru Íslands. „Núna sitja hins vegar eftir í hugum sumra ímyndir jarðvár og öskufallsgráma.“ Hafi ferðamenn ekki alveg sérstakan áhuga á Íslandi segir Nysetvold viðbúið að erfiðara verði að telja þá á að koma hingað. „Áhrifin eru mismunandi eftir aldri og samsetningu hópa ferðafólks. Eldra fólk, sem gjarnan ferðast með skemmtiferðaskipum, er líklegast til að halda sig fjarri.“ Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, segir félagið stöðugt hvetja stjórnvöld til dáða á sviði kynningarmála. „Það er hörð samkeppni í ferðaheiminum og það kostar fjármuni og fyrirhöfn að fá ferðamenn til Íslands,“ segir hann. Þótt Inspired by Iceland-átakið hafi tekist vel þurfi meira að koma til. „Icelandair setur mikla fjármuni í auglýsingar og kynningarstörf erlendis, en aðrir verða að koma að því líka,“ segir hann. Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður erlendrar markaðssóknar hjá Íslandsstofu, undrast áhyggjur Nysetvolds, og segir frekar að vart sé við aukinn áhuga á Íslandi. „Það er allt samkvæmt áætlun í sölu erlendis,“ segir hún og bendir á að nú sé nánast sama bókunarstaða á ferðum hingað og var í fyrra, þegar stefndi í metár. Þá telur Inga Hlín ekki ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur af Þýskalandsmarkaði, sem standi ágætlega efnahagslega. Líklegra sé að kuldatíð sem þar hafi staðið letji fólk til að panta sér ferð til Íslands. Landið verður hins vegar að sögn Ingu ofarlega á baugi í margvíslegum kynningum og umfjöllun ytra næstu vikur, svo sem vegna bókamessunnar í Frankfurt, þar sem Ísland verður heiðursgestur. olikr@frettabladid.is Ole Nysetvold
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira