Viljayfirlýsing um sölu á Perlunni undirrituð 19. desember 2011 10:00
Orkuveita Reykjavíkur hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um sölu á Perlunni við þá aðila sem áttu hæsta tilboð í eignina. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að bjóðendur fái nú frest til 31. mars næstkomandi til að aflétta fyrirvörum í tilboði sínu. „Fyrirvararnir miðast við að treysta forsendur hagkvæmniathugunar, sem liggur til grundvallar tilboðinu. Hæstbjóðendur eru innlendir fjárfestar sem starfað hafa á sviði ferðaþjónustu og húsbygginga. Garðar Vilhjálmsson lögmaður er í forsvari fyrir þeim,“ segir ennfremur. Þá segir að sex tilboð hafi borist í Perluna, en eignin var auglýst til sölu nú á haustdögum. „Öll voru tilboðin háð einhverjum fyrirvörum en hið hæsta nemur 1.688,8 milljónum króna. Ekki verður ráðist í viðræður við aðra bjóðendur meðan viljayfirlýsingin við hæstbjóðendur er í gildi.“Tankarnir ekki seldir Hitaveitutankarnir sem Perlan er byggð ofan verða ekki seldir og munu áfram þjóna hitaveitunni í Reykjavík. „Perlan var auglýst til sölu í byrjun september og rann tilboðsfrestur út 18. október. Hún er ein þeirra eigna sem stjórn OR samþykkti að selja í janúar síðastliðnum. Þá voru einnig settar reglur um söluferli eigna og ákveðið að gefa eigendum fyrirtækisins kost á að kaupa tilteknar eignir áður en þær færu í almenna sölu. Borgarráð Reykjavíkur ákvað samhljóða á fundi 23. júní sl. að gera ekki athugasemdir við að Perlan færi í almenna sölu. Í framhaldinu leitaði OR tilboða í umsjón með sölu stærri eigna og sér Fasteignasalan Miklaborg um söluna.“Hluti Orkuveituhússins auglýst um helgina „Sala Perlunnar er hluti aðgerðaáætlunar Orkuveitu Reykjavíkur og eigenda fyrirtækisins sem samþykkt var í vor. Samkvæmt henni mun fyrirtækið afla fjár með sölu á eignum utan kjarnastarfsemi að fjárhæð 10 milljarða króna á árabilinu 2011 til og með 2016. Eignasalan, eins og aðrar aðgerðir, eru á áætlun,“ segir að lokum um leið og minnst er á að nú um helgina hafi hluti höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1 verið auglýstur til leigu eða sölu. Þar er um að ræða austurbygginguna.
Mest lesið Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Sjá meira