Drekarnir í Sundsvall töpuðu í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. október 2011 18:54 Hlynur Bæringsson í leik með Sundsvall. Mynd/Valli
Fjórir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld og voru tvö Íslendingalið í eldlínunni. Sundsvall Dragons tapaði en Solna, lið Loga Gunnarsson, vann í kvöld sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Sundsvall tapaði fyrir Borås Basket á útivelli, 91-85, í æsispennandi leik. Jafnræði var með liðunum allan leikinn en heimamenn reyndust sterkari á lokakaflanum. Þegar þrjár mínútur voru eftir var staðan jöfn, 83-83, eftir að þeir Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson hefðu skorað fjögur stig í röð fyrir sundsvall. Gestirnir komust svo yfir stuttu síðar en misstu þá leikinn úr höndunum. Hlynur og Jakob fengu báðir dæmda á sig villu eftir þetta og Pavel Ermolinskij tapaði boltanum þar að auki einu sinni. Borås gekk á lagið með því að skora sjö síðustu stig leiksins og vinna þar með sex stiga sigur, sem fyrr segir. Jakob var stigahæstur leikmanna Sundsvall með 20 stig. Pavel skoraði sextán auk þess sem hann tók ellefu fráköst og Hlynur var með tíu stig og átta fráköst. Logi átti flottan leik þegar að Solna vann góðan sigur á LF Basket, 103-93. Logi skoraði 21 stig í leiknum, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Solna byrjaði betur en LF Basket náði að koma sér aftur inn í leikinn í þriðja leikhluta. Logi og félagar gáfu þá aftur í og náðu undirtökunum á lokamínútum leiksins. Sundsvall er með fjögur stig eftir fjórar umferðir en Solna er með tvö stig.
Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Sjá meira