Íhugar breytingar á vopnalögum í kjölfar árásanna í Noregi 26. júlí 2011 18:30
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, íhugar nú breytingar á vopnalögum í kjölfar hryðjuverkanna í Noregi. Hann segir að ekki sé þörf á skipulögðu eftirliti með skrifum á internetinu. Innanríkisráðherra fundaði með ríkislögreglustjóra í gær ásamt öðrum ráðherrum um hryðjuverkin í Noregi. Hann segir ekki þörf á að grípa til sértækra aðgerða hér á landi í kjölfar atburðanna. „Auðvitað er þetta eitthvað sem að getur hent hvar sem er í veröldinni þar sem að á ferðinni eru einstaklingar eins og sá sem átti þarna í hlut en við erum ekki að fara að umbylta okkar samfélagi í kjölfar þessarra atburða, alls ekki." Hann segir öryggismál hér á landi vera í góðum farvegi, það séu hins vegar ýmsir þættir sem þurfi að taka til skoðunar, til dæmis endurskoðun á vopnalögum. „Það er nokkuð sem að við munum skoða hér í ráðuneytinu og hugsanlega leggja nýtt frumvarp fyrir ríkisstjórnina í haust, við erum að fara yfir hvort vopnalögin eru á einhvern hátt of rúm, við horfum til þess að einstaklingar hafa byssur sem þeir nota til veiða en síðan kunna að vera önnur vopn sem eiga ekkert heima á íslenskum heimilum" Norski fjöldamorðinginn fór mikinn á netinu áður en hann lét til skara skríða. Ráðherra telur þó ekki ástæðu til að efla eftirlit með skrifum á netinu. „Lögreglan hér nýtur almennt mjög mikils trausts og þá hygg ég að ef að mönnum finnst eitthvað undarlegt á ferðinni þá láti menn lögregluna vita um slík það er miklu betur háttur á að hafa en að beita skipulögðu eftirliti, það tel ég reyndar vera mjög varasamt."
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Sjá meira