Viðskipti innlent

Síminn greiðir 750 milljónir til Seamobile Europe

Síminn hf., dótturfélag Skipta hf., hefur undirritað samkomulag við Seamobile Europe um að ágreiningsmáli milli félaganna tveggja ljúki með því að Síminn greiði Seamobile Europe 4,5 milljónir evra eða tæplega 750 milljónir kr. , sem er umtalsvert lægri fjárhæð en niðurstaða gerðardóms Alþjóðaviðskiptaráðsins í París kvað á um.

Í tilkynningu segir að samkvæmt niðurstöðu gerðardómsins frá því í október 2010 bar Símanum að greiða um 7,7 milljónir evra. Krafa Seamobile Europe var gerð á grundvelli samnings sem Landssími Íslands hf. gerði við fyrirtækið Geolink á árinu 2003 um fjarskiptaþjónustu á alþjóðlegum hafsvæðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í byrjun árs aðfararhæfi gerðardómsins á Íslandi með áritun sinni.

Með þessu samkomulagi lýkur lagadeilum á milli félaganna sem ætla má að hefðu orðið langvinn og kostað umtalsverðar fjárhæðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×