Segir mikilvægt að berjast fyrir hagstæðum ESB samningi 10. mars 2011 14:02
Helgi Magnússon formaður Samtaka iðnaðarins fjallaði um mikilvægi þess að berjast fyrir hagstæðum aðildarsamningi við ESB í ræðu sinni á Iðnþingi í dag. „Til þess að losna við gjaldeyrishöftin að fullu munum við væntanlega þurfa annan gjaldmiðil en íslenska krónu,“ segir Helgi. Í tilkynningu um fundinn kemur fram að Helgi sagði það undirstrika mikilvægi þess að Ísland freisti þess að fullu afli að ná viðunandi samningum við ESB en benti á að sumir aðilar innan Samtaka iðnaðarins væru uggandi „Það á ekki síst við um félaga okkar í mjólkur- og kjötiðnaði. Fáir eiga meira undir en þeir að samningar verði okkur Íslendingum hagfelldir. Fyrir því verður að berjast til síðustu stundar og ég hef ekki trú á því að landsmenn samþykki aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu nema samningarnir verði okkur hagstæðir,“ segir Helgi. Helgi sagðist sjálfur munu meta innihald samninganna áður en hann ákveddi hvernig hann greiddi atkvæði. „Með hagstæðum samningum eigum við erindi í ESB. Annars ekki og þá þurfum við að halda áfram að hokra hér með þá íslensku krónu sem erlendir fjárfestar hafa nú gefist upp á – hvort sem okkur líkar betur eða verr.“ Helgi segir stórkostleg tækifæri felast í meginauðlindum landsins, hreinu vatni, orku, matvælum og landi. „Hin risavöxnu viðfangsefni jarðarbúa á næstu árum og áratugum felast í því að geta séð hinum mikla fjölda fyrir mat, vatni, orku og landrými. Þar liggur styrkur Íslands. Þar liggja tækifæri Íslands. Vandi umheimsins er tækifæri okkar. Kuldalegt. En engu að síður staðreynd,“ segir Helgi. "Smáþjóð sem býr yfir þessum auðlindum á að hafa alla burði til að geta nýtt sér þær og lifað góðu lífi. Hún á að geta haldið háum meðaltekjum fólks, háum kaupmætti, lágu atvinnuleysi, haft öflugt atvinnulíf og gott mannlíf. Til þess að svo verði þurfum við samstöðu um uppbyggingu og nýtingu tækifæranna.“
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira