Búið að ganga frá starfsmannamálum hjá SpKef 15. mars 2011 11:08
Landsbankinn hefur nú gengið frá starfsmannamálum vegna samruna útibúa SpKef og Landsbankans. Á fjórum stöðum hafa bæði fyrirtæki rekið útibú, Ísafirði, Ólafsvík, Grindavík og í Reykjanesbæ og hefur þegar verið greint frá því að allir starfsmann SpKef og Landsbankans í útibúum í Reykjanesbæ halda störfum sínum. Í tilkynningu um málið kemur fram að starfsmannamál hafa að öðru leiti verið leyst með eftirfarandi hætti:Ísafjörður Útibúin á Ísafirði verða sameinuð í húsnæði Landsbankans. Engar uppsagnir fylgja þeim samruna. Sævar Þór Ríkharðsson útibússtjóri Landsbankans mun stýra útibúinu en Steinn I. Kjartansson fyrrverandi útibússtjóri SpKef, verður þjónustustjóri. Fimm starfsmenn SpKef munu því flytja inn í útibú Landsbankans. Einn starfsmaður Landsbanka og einn starfsmaður SpKef hafa ákveðið að leita á önnur mið. Ólafsvík Útibú verða sameinuð í húsnæði Landsbankans undir forystu Eysteins Jónssonar útibússtjóra. Engar uppsagnir verða af þessum sökum nú en einn starfsmaður SpKef hefur þegar ráðið sig annað. Aðrir koma til starfa í útibúi Landsbankans. Helga Guðjónsdóttir útibússtjóri SpKef í Ólafsvík mun vinna að samrunanum en láta af störfum síðar á þessu ári.Grindavík Útibúin í Grindavík verða sameinuð í húsnæði Landsbankans. Einn starfsmaður SpKef var lausráðinn og hættir þegar samningur hans rennur út og einum öðrum hefur verið sagt upp. Aðrir koma til starfa hjá Landsbankanum. Valdimar Einarsson útibússtjóri Landsbankans mun leiða útibúið en fyrrverandi útibússtjóri SpKef hefur fengið boð um starf í höfuðstöðvum Landsbankans.Aðrir staðir Afgreiðslur sem áður heyrðu undir SpKef á Flateyri, Þingeyri, Súðavík, Tálknafirði, Bíldudal, Króksfjarðarnesi, Garði, Sandgerði, Njarðvík og Vogum munu starfa áfram eins og verið hefur. Sama gildir um útibúin á Patreksfirði og Hvammstanga. Enn er unnið að málum þeirra sem starfa í höfuðstöðvum SpKef í Reykjanesbæ en eins og fyrr hefur komið fram kemur til greina að flytja störf til Reykjanesbæjar.
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira