Tekjubil minnkaði á Íslandi á síðasta ári Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. febrúar 2011 09:15
Tekjubil á Íslandi minnkaði frá árinu 2009 til ársins 2010. Tekjubilið hafði hins vegar breikkað árin þar á undan. Hlutfall Íslendinga undir lágtekjumörkum hefur haldist nær óbreytt frá fyrstu lífskjararannsókn Hagstofunnar árið 2004. Þetta sést þegar horft er til svokallaðs Gini-stuðuls og fimmtungastuðuls úr lífskjararannsókn Hagstofu Íslands. Gini-stuðullinn sýnir dreifingu ráðstöfunartekna meðal landsmanna á einkaheimilum. Hann var 25,7 árið 2010 en 29,6 árið áður. Stuðullinn væri 100 ef einn maður væri með allar tekjurnar en 0 ef allir hefðu jafnar tekjur. Fimmtungastuðullinn gefur til kynna að þeir sem tilheyrðu tekjuhæsta fimmtungnum í lífskjararannsókninni 2010 höfðu 3,6 sinnum hærri ráðstöfunartekjur á neyslueiningu en þeir sem tilheyrðu tekjulægsta fimmtungnum. Fimmtungastuðullinn var 4,2 árið 2009. Lágtekjuhlutfall var 9,8% á Íslandi árið 2010 og hefur lítið breyst frá því mælingar hófust. Lágtekjuhlutfall er skilgreint sem 60% af ráðstöfunartekjum á neyslueiningu en þær byggjast á ráðstöfunartekjum heimila og hversu margir þurfa að lifa af þeim. Af 29 Evrópuþjóðum var Ísland í 17. sæti þegar þjóðunum er raðað frá þeirri sem var með lægsta Gini-stuðulinn til þeirrar sem hafði hæsta stuðulinn. Tölurnar fyrir evrópska samanburðinn eru frá 2009. Ísland var í 12. til 14. sæti yfir Evrópuþjóðirnar 29 þegar fimmtungastuðlinum er raðað frá þeim lægsta til þess hæsta. Fram til 2009 hækkaði Gini-stuðullinn og fimmtungastuðullinn meira hjá Íslandi en flestum öðrum Evrópuþjóðum. Af 29 Evrópuþjóðum var Ísland með næst lægsta lágtekjuhlutfallið á eftir Tékklandi. Þróun lágtekjuhlutfalls er ekki á sama veg og þróun fimmtunga- og Gini-stuðulsins þar sem Ísland hefur stöðugt verið ein þeirra þjóða sem eru með lægsta lágtekjuhlutfallið.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira