Sparifé í leit að arðsemi hækkar íbúðaverð 18. febrúar 2011 12:03
Nokkrar skýringar eru eflaust á því af hverju íbúðamarkaðurinn er aðeins að glæðast um þessar mundir. Fyrst má nefna að kaupmáttur hefur verið vaxandi og væntingar eru um að botni kreppunnar sé náð. Þá hefur sparifé verið að leita að arðsemi á þeim lokaða fjármagnsmarkaði sem hér er þar sem fjárfestingarkostirnir eru fáir. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um nýjustu mælingu Þjóðskrár Íslands á íbúðaverðvísitölu borgarinnar. Hún hækkaði um 0,8% í desember. Í Morgunkorninu segir að eftirspurn sé að stórum hluta drifin af væntingum um þróun íbúða- og leiguverðs, en leiguverð hefur haldist nokkuð hátt undanfarið og íbúðaverð virðist vera a.m.k. nálægt botninum. Í þriðja lagi hefur endurreikningi á lánum heimila miðað áfram og hefur það skýrt myndina í fjármálum heimilanna. Samhliða hefur losnað um bæði framboðs- og eftirspurnarstíflu á íbúðamarkaðinum sem kann að skýra aukna veltu nú að hluta. Þessu ferli endurreiknings er ekki lokið og mun hann halda áfram að marka íbúðamarkaðinn á næstunni. Þrátt fyrir talsverða lækkun verðs íbúðarhúsnæðis undanfarin þrjú ár er íbúðaverð ekki lágt sögulega séð. Er raunverð íbúðarhúsnæðis þannig rétt við meðaltal síðustu tveggja áratuga og nafnverðið er svipað því sem það var yfir langtíma meðaltali og nú svipað því sem það var árið 2006 en þá sló það sögulegt met. Verð íbúðarhúsnæðis í hlutfalli við laun er einnig rétt við langtímameðaltalið. Það er þannig að vissu marki sigur fyrir fjárhag skuldsettra heimila sem hafa sitt sparifé að stórum hluta í íbúðarhúsnæði að verðið hafi ekki lækkað meira núna í kreppunni, en dæmi eru um talsvert meiri lækkun íbúðarhúsnæðis í fjármálakreppum og má þar nefna kreppuna í Finnlandi í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar en þar lækkaði raunverði íbúðarhúsnæðis um 50%.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira