Lögreglan rannsakar umdeilda millifærslu FL Group 18. febrúar 2011 12:57 Hannes Smárason, fyrrverandi stjórnarformaður FL Group.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsakar nú umdeilda millifærslu af reikningum FL Group frá árinu 2005 vegna gruns um fjárdrátt. Stjórn FL Group eins og hún lagði sig sagði af sér og Ragnhildur Geirsdóttir, þáverandi forstjóri FL Group, sagði starfi sínu lausu árið 2005 eins og frægt er orðið. Fram hefur komið að ástæða uppsagnar Ragnhildar hafi mátt rekja til þriggja milljarða króna millifærslu af reikningum FL Group inn á reikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg sumarið 2005. Millifærslan var framkvæmd í apríl 2005 án vitunar og samþykkis Sigurðar Helgasonar, þáverandi forstjóra FL Group. Ragnhildur sagði í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í fyrra að hún hefði fengið vitneskju um millifærsluna um það leyti sem hún tók við starfi forstjóra FL Group sumarið 2005. Málið hefur til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra frá árinu 2009. DV greinir frá því í dag að nú sé rannsóknin kominn á fullan skrið, m.a vegna ónafngreinds vitnis sem gaf skýrslu í fyrra sem mun hafa varpað nýju ljósi á málið. DV greinir frá því að Hannes Smárason, þáverandi stjórnarformaður FL Group, hafi beðið Einar Sigurðsson, starfsmann fyrirtækisins, að stofna reikning hjá Kaupþingi í Lúxemborg örfáum dögum áður en milljarðarnir þrír voru millifærðir til Lúxemborgar. Ragnhildur Geirsdóttir sagði í fyrra að hún hefði séð Excel-skjal frá Kaupþingi í Lúxemborg sem skilja mátti þannig að peningarnir hefðu verið millifærðir til Fons, félags Pálma Haraldssonar. Pálmi Haraldsson neitar því hins vegar að peningarnir hafi komið inn á reikninga Fons, eða reikninga annarra félaga í sinni eigu, en DV greinir frá því að grunur leiki á um að fjárdrátt hafi verið að ræða. Ekki náðist í Gísla Guðna Hall, verjanda Hannesar Smárasonar í morgun.
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Sjá meira