Viðskipti innlent

NBI fær 450 milljóna arð frá kauphöllinni í Osló

Gengi hlutabréfa í kauphöllinni í Osló, Oslo Börs,  hefur hækkað um fjórðung á einum mánuði. Nýi Landsbankinn (NBI) á 6,5% hlut í félaginu. Bankinn fékk um 450 milljónir kr. í arð af þessari eign sinni á síðasta ári.

Fjallað er um málið í Morgunpósti IFS greiningar en Viðskiptablaðið greinir frá því á vefsíðu sinni. Gengi hlutabréfa í Oslo Börs, sem á kauphöllina í Osló, hefur hækkað um fjórðung á einum mánuði og um tæpan helming á síðustu þremur mánuðum. NBI á 6,5% hlut í félaginu.

Í Morgunpóstinum segir að samrunar nokkurra stórra kauphalla hafi sennilega haft áhrif á verðþróunina.

Kauphöllin hagnaðist um 59,8 milljónir norskra króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, sem var verulegur viðsnúningur á milli ára. Lagt er til að greiddar verði átta norskar krónur í arð á hlut fyrir síðasta ár. Það myndi færa NBI um 450 milljónir íslenskra króna, að því er segir í Morgunpósti IFS greiningar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×