Viðskipti innlent

Um 120 milljarðar fluttir úr innlánum og í skuldabréfasjóði

Frá ársbyrjun hafa um 120 milljarðar kr. farið úr innlánum í bönkunum og yfir í skuldabréfasjóði. Takmarkað framboð er á skuldabréfum en eftirspurnin er mikil.

Þetta kemur fram í bráðbirgðaspá greiningar Arion banka um skuldabréfamarkaðinn í nóvember. Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að vaxtalækkun Seðlabankans og lækkun innlánsvaxta, mikið innflæði í skuldabréfasjóði og takmarkað framboð ríkisbréfa leggjast á eitt að þrýsta niður ávöxtunarkröfu skuldabréfa.

Ef útgáfuáætlanir munu standast stefnir í að nettó framboð skuldabréfa og víxla verði neikvætt um allt að 42 milljarða kr. það sem eftir lifir árs.

Búast má við að nettó framboð á árinu 2011 verði um 32 milljarðar króna. Góðar líkur eru á að fjárlagahallinn verði enn meiri þar sem óvíst er hvort efnahagsforsendur fjárlaganna standist. Nettó útgáfa gæti því aukist.

Ef tekið er mark á tölum um innflæði í skuldabréfasjóði, hafa sparifjáreigendur verið að færa innlán í áðurnefnda sjóði á fyrstu níu mánuðum ársins. Verði framhald þar á ætti 32 milljarða kr. nettó framboð ríkisskuldabréfa ekki að vera vandamál.

Frá ársbyrjun hafa um 120 milljarðar kr. farið úr innlánum og í áðurnefnda sjóði. Þó má nefna að lítið sem ekkert innflæði var í september og gæti það átt upptök sín í hræðslu vegna mikillar verðlækkunar á skuldabréfamarkaðnum, að því er segir í Markaðspunktunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×