Erlend skuldastaða þjóðarbúsins ekki betri í áratugi 3. desember 2010 12:28
Erlend skuldastaða þjóðarbúsins hefur ekki verið betri í tvo áratugi mæld sem hlutfall af landsframleiðslu. Hér er átt við stöðuna án erlends eignarhalds á bönkunum og þeirrar Icesave-skuldar sem kann að falla á ríkissjóð. Þetta kemur fram í Morgunkorn i greiningar Íslandsbanka en Seðlabankinn birti í gær tölur um erlenda stöðu þjóðarbúsins í lok þriðja ársfjórðungs sem sýna að staða þjóðarbúsins hefur batnað lítillega frá fyrri fjórðungi. Að gömlu bönkunum undanskildum var hrein erlend staða þjóðarbúsins neikvæð um 368 miljarða kr. og hefur batnað um 26 milljarða kr frá fyrri fjórðungi. Á þennan mælikvarða hefur erlend staða þjóðarbúsins batnað mikið frá því sem áður var, en á sama tíma í fyrra var staðan neikvæð um tæpa 700 milljarða kr. „Neikvæð erlend staða án gömlu banka er nú u.þ.b. 24% af áætlaðri vergri landsframleiðslu (VLF) þessa árs. Er það mun hagstæðari staða en verið hefur undanfarna tvo áratugi, en þó verður að hafa í huga að inni í þessum tölum er ekki erlent eignarhald nýju bankanna né heldur sú skuld sem á endanum kann að falla á ríkissjóð vegna Icesave, svo nokkuð sé nefnt," segir í Morgunkorninu. Þegar innlánsstofnanir í slitameðferð eru teknar með í reikninginn var hrein staða við útlönd neikvæð um 9.296 milljarða kr. í lok fjórðungsins og lækka nettóskuldir þar með um tæpa 558 milljarða kr. frá öðrum fjórðungi. Erlendar skuldir þjóðarbúsins námu 13.207 milljarðar kr. en erlendar eignir voru 3.910 milljarðar kr. Erlendar skuldir gömlu bankanna vega þungt í þessum tölum en þær munu hverfa smám saman á næstu misserum samhliða eignasölu og afskriftum á skuldum. Þar sem Seðlabankanum hafa nú borist haldbærar upplýsingar um erlendar eignir innlánastofnanna í slitameðferð hefur heildarmyndin breyst töluvert frá því að síðustu tölur um erlenda stöðu þjóðarbúsins voru birtar. Eignir innlánsstofnana í slitameðferð voru töluvert lægri en áður var áætlað og við þessa breytingu versnar erlend staða þjóðarbúsins að innlánsstofnunum í slitameðferð meðtöldum frá því sem áður var haldið. Þetta hefur hinsvegar engin áhrif þegar erlend staða þjóðarbúsins að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð er skoðuð.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira