Leikmenn Roma orðaðir við Manchester United og Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2010 23:30 Daniele De Rossi og Mirko Vucinic fagna saman marki með Roma. Mynd/Nordic Photos/Getty
Tveir leikmennn ítalska liðsins Roma gætu verið á leiðinni í ensku úrvalsdeildina ef marka má fréttir ítalska blaðsins Il Corriere dello Sport. Þetta eru landsliðsmennirnir Daniele De Rossi og Mirko Vucinic. Manchester United hefur mikinn áhuga á því að kaupa Daniele De Rossi og samkvæmt frétt ítalska blaðsins er Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United tilbúinn í að borga meira en 20 milljónir evra fyrir leikmanninn. Liverpool er hinsvegar á eftir Svartfellingnum Mirko Vucinic og samkvæmt frétt ítalska blaðsins er Liverpool tilbúið að borga sextán milljónir evra fyrir hann. Daniele De Rossi er 27 ára miðjumaður og lykilmaður í ítalska landsliðinu. Hann hefur spilað með Roma allan sinn feril á 226 leiki að baki í efstu deild. Rossi hefur einni leikið 61 landsleik fyrir Ítala frá árinu 2004. Mirko Vucinic er 27 ára framherji sem hefur spilað með Roma síðan 2006 en hann hefur skorað 53 mörk í 121 deildarleik með liðinu. Vucinic lék áður í sex ár með Lecce en hann hefur skorað 11 mörk í 21 landsleik fyrir Svartfjallaland. Vucinic lék einnig 3 landsleiki fyrir landslið Serbíu og Svartfjallalands. Roma vill ekki selja leikmennina en gæti verið nauðbeygt til þess vegna fjárhagsvandræða. Það hafa einnig komið fréttir af óeiningu innan leikmannahópsins sem og mikilli óánægju með þjálfarann Claudio Ranieri.
Ítalski boltinn Mest lesið Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-2 | Lyftu sér upp úr fallsæti Íslenski boltinn PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Enski boltinn Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Enski boltinn Fleiri fréttir Tottenham - Newcastle | Bæði lið leitast eftir fyrsta sigrinum Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Sjá meira