Ekki átti að rýra réttindin 25. október 2010 05:00 Úrræði bankanna áttu ekki að rýra rétt neytenda. Fréttablaðið/anton
Höfuðstólslækkun bílalána sem boðið var upp á hjá Íslandsbanka í byrjun árs gekk til baka í nokkrum tilvikum við endurútreikning lána eftir dóm Hæstaréttar í sumar. Búið er að birta endurútreikning í heimabanka fimm til sex þúsund viðskiptavina Íslandsbanka. Nokkrir viðskiptavina bankans hafa kvartað vegna málsins. Fréttablaðið hefur undir höndum afrit af bílalánasamningi viðskiptavinar bankans. Hann tók lán til fjögurra ára árið 2006. Helmingur þess var í krónum en afgangurinn í blandaðri mynt. Lántaki samdi í febrúar um höfuðstólslækkun, sem nam 35 þúsund krónum, eða tólf prósentum. Lækkunin gekk til baka við endurútreikning í haust. Íslandsbanki segir þetta hafa gerst í undantekningartilvikum. Það hafi komið fyrir nokkra sem voru með stuttan lánstíma, höfðu borgað lán sín niður á hágengistíma og stutt í síðasta gjalddaga. Þá hafði áhrif ef viðkomandi nýtti sér greiðsluúrræði. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir úrræðin ekki hafa átt að rýra rétt neytenda. Þvert á móti áttu þeir að njóta betri réttar. Verið er að skoða innan Íslandsbanka hvernig tilfelli sem þessi verða meðhöndluð, samkvæmt svari frá bankanum. - jab
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira