Leonardo hættir með AC Milan eftir Juventus-leikinn á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2010 15:00 Leonardo, þjálfari AC Milan. Mynd/AFP
Leonardo, þjálfari AC Milan, hefur ákveðið í samráði við yfirmenn félagsins að hætta með ítalska liðið eftir tímabilið. Hann stjórnar því AC Milan liðinu í síðasta sinn í lokaumferðinni á morgun. Leonardo tók við af Carlo Ancelotti þegar Ancelotti fór til Chelsea. Þó að hann hafi ekki unnið titil með liðinu á tímabilinu þá hefur hann tryggt félaginu sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. „Við erum komnir hingað til að tilkynna ykkur það að hér skilja leiðir hjá okkur. Við gerum það á rólegan og yfirvegaðan hátt eins og hefur verið okkar stíll hjá AC Milan," sagði Leonardo við blaðamenn. „Þetta kemur kannski ekki mörgum á óvart en við vorum bara komnir á endastöð. Við höfum samt náð markmiðum okkar sem var að komast í Meistaradeildina," sagði Leonardo. Það hefur verið mikið skrifað og slúðrað um framtíð Leonardo hjá AC Milan ekki síst eftir að liðið datt út fyrir Manchester United í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. AC Milan var í titilbaráttunni við nágranna sína í Inter Milan stærsta hluta tímabilsins en nýtti ekki tvö tækifæri í mars til að komast á toppinn og dróst síðan aftur úr bæði Inter og Roma á lokasprettinum. „Ég vissi ekki hvernig það væri að vera þjálfari. Þetta var frábær reynsla en ég veit ekki hvort ég reyni þetta aftur, að minnsta kosti ekki næstu árin," sagði Leonardo. Lokaleikur Leonardo með AC Milan verður á móti Juventus á morgun. Eftirmaður hans er ekki fundinn og Adriano Galliani, forseti AC Milan, sagði að menn þar á bæ ætli að taka sér góðan tíma í að finna hann.
Ítalski boltinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Fleiri fréttir Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjá meira