Enn er vart búið að ná botninum á íbúðamarkaði 28. október 2010 11:55
Greining Íslandsbanka segir að samkvæmt niðurstöðum mælinga er ljóst að verulega hefur hægt á verðlækkunum á íbúðamarkaði. Hinsvegar er enn of snemmt að segja að botninum sé náð á íbúðamarkaði þar sem að miklar sveiflur eru á milli mánaða í þessum mælingum og enn ekki útséð með að verðlækkanirnar séu að baki endanlega. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að íbúðaverð á landinu öllu hefur nú lækkað um 1,7% á undanförnum 12 mánuðum. Tólf mánuðina þar á undan lækkað íbúðaverðið um 8,5%. Samhljómur er með þessum mælingum og mælingum Þjóðskrár Íslands á íbúðaverði en samkvæmt þeim síðarnefndu hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 3,2% undanfarna 12 mánuði en á sama tíma í fyrra hafði íbúðaverð í þeirra bókum lækkað um 10,2%. Þá ber að hafa í huga að mælingarvandinn vegna fæð samninga sem gæti verið að skekkja myndina. Frá því að íbúðaverð náði hámarki í lok árs 2007 hefur það lækkað um 13% að nafnverði og um rúm 35% að raunvirði. Lunginn af þeim verðlækkunum sem við munum sjá í þessari kreppu er líklega kominn fram þó að enn sé talsverð óvissa framundan á íbúðamarkaði. „Engu að síður má telja líklegt að hægfara viðsnúningur sé framundan á íbúðamarkaði og botninn í sjónmáli. Það sem styður þá þróun er meðal annars viðsnúningur í kaupmætti, hjöðnun verðbólgu, styrking á gengi krónunnar, lægri vextir og hin almenni viðsnúningur í hagkerfinu sem framundan er," segir í Morgunkorninu. „Taki hagkerfið við sér á næsta ári eins og spár gera ráð fyrir mun íbúðamarkaðurinn fylgja með. Það sem hinsvegar helst gæti staðið í vegi fyrir áframhaldandi viðsnúningi á íbúðamarkaði er bakslag í efnahagsbatanum, viðvarandi óvissa varðandi skuldastöðu heimilanna, bakslag á vinnumarkaði og viðvarandi fólksfækkun."
Mest lesið Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira