Viðskipti innlent

Hagnaður HS Orku nemur 1,2 milljörðum

Hagnaður HS Orku á fyrstu níu mánuðum þessa árs nemur ríflega 1,2 milljörðum kr. eftir skatta. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaðurinn ríflega 2,2 milljörðum kr.

Þetta kemur fram í tilkynningu um uppgjörið. Þar segir að tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins hafi numið 5,1 milljarði kr. sem er um 800 milljónum kr. meiri tekjur en á sama tímabili í fyrra.

Eignir HS orku nema nú 41,7 milljörðum kr. Af þeim nemur hlutafé 17,5 milljörðum kr. eða um 42% af heildareignum.

Ef þriðji ársfjórðungur er skoðaður kemur í ljós að hagnaður á honum hefur þrefaldast milli ára. Er 3,6 milljarðar kr. í ár en var rúmlega 1,2 milljarður kr. í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×