Ábyrgðin færist yfir til ríkisstjórnarinnar 26. nóvember 2010 19:54 Hannes G. Sigurðsson, forstöðumaður hagdeildar Samtaka atvinnulífsins, segir að samtökin telji að Seðlabankinn hafi ráðist allt of hægt í stýrivaxtalækkanir.
Svigrúm Seðlabankans til að keyra niður raunvexti fer minnkandi með lækkandi verðbólgu. Hagdeild Samtaka atvinnulífsins telur að ábyrgðin á því að blása lífi í hagkerfið sé að færast frá Seðlabankanum og yfir á stjórnvöld. Vaxtastefna Seðlabankans hefur eftir hrun miðað að því að styðja við gengi krónunnar frekar en að örva hagkerfið eins og víða annarstaðar. Verðbólgan hér á landi mælist nú aðeins 2,6 prósent, sem merkir að svigrúm Seðlabankans til að keyra niður raunvexti í framtíðinni og auka þannig fjárfestingu fer minnkandi. Hannes G. Sigurðsson, forstöðumaður hagdeildar Samtaka atvinnulífsins, segir að samtökin telji að Seðlabankinn hafi ráðist allt of hægt í stýrivaxtalækkanir. „Það hefur ítrekað komið fram í könnunum meðal stjórnenda að þeir telja að of hátt vaxtastig hafi komið í veg fyrir fjárfestingar undanfarin misseri. Nú um stundir þá er myndin flóknari og menn telja að ástæðan fyrir þessum litlu fjárfestingaráformum sé pólitísk óvissa," segir Hannes. Hann telur að fyrirtæki horfi að miklu leyti á nafnvexti, og þegar þeir séu komnir til jafns á við önnur lönd taki fjárfestingar hugsanlega við sér. Hannes segir að Seðlabankinn geti ekki haft mikil áhrif á fjárfestingu eftir að svigrúmið til vaxtalækkana hefur verið tæmt. „Ég held að það sé mikilvægast að stjórnvöld marki sóknarstefnu í atvinnumálum, eyði óvissu í kringum sjávarútveginn og stuðli að þeim verkefnum sem eru á borðinu og þá komast þeir upp úr þessari kreppu," segir Hannes. Ábyrgðin fyrir því að blása lífi í efnahagskerfið sé að færast frá Seðlabankanum og yfir til ríkisstjórnarinnar.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira