Heiðar Már: Aldrei með skortstöðu og ætlar í mál Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. október 2010 11:20 Heiðar Már Guðjónsson.
Heiðar Már Guðjónsson segist á engum tímapunkti hafa verið með skortstöðu á krónuna. Þá varaði hann við hruninu og fékk fjölmarga erlenda sérfræðinga til landsins til að veita stjórnvöldum ráðgjöf. Hann ætlar í meiðyrðamál við DV. Heiðar Már skrifar grein í Fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni „Áhættuvarnir og rangar sakir" en tilefnið er umfjöllun DV um hann undanfarna daga, en blaðið hefur haldið því fram að hann hafi skipulagt árás á íslensku krónuna. Heiðar Már segist lengi hafa verið svartsýnn á íslensku krónuna. Til þess að draga úr áfalli við fall krónunnar hafi hann um um nokkurn tíma varið hluta íslenskra eigna fyrir verðfalli gjaldmiðilsins. Það hafi verið gert með framvirkum samningi sem hafi í raun virkað sem trygging gegn lækkun krónunnar en á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum sé vísað til kostnaðar við slíkar tryggingar sem „bleed" vegna vaxtakostnaðar sem þær hafi í för með sér. Það útskýri orðalag í tölvupósti sem hann sendi þar sem hann sagði að honum blæddi. Heiðar Már segist hafa nýtt slíkar tryggingar sem lið í áhættustýringu en á engum tímapunkti hafi hann hins vegar verið með skortstöðu á íslensku krónuna þar sem eignir Novators á Íslandi hafi verið það miklar að ógerlegt hefði verið að verja þá áhættu að fullu. Heiðar Már segir að þetta sjáist best á því að Novator og hann sjálfur hafi tapað miklum fjármunum á hruninu og það sé einnig í fullu samræmi við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem rannsakaði hreyfingar á gjaldeyrismarkaðnum fyrir hrunið. Heiðar Már segir að ástæðan fyrir því að hann hafi keypt tryggingar gegn gengisleiðréttingu krónunnar hafi verið sú að hann hafði miklar áhyggjur af stöðu krónunnar og íslenska hagkerfisins allt frá árinu 2005 og fram að hruni. Hann hafi opinberlega bent á veikleika kerfisins og rekur líka að hann hafi átt frumkvæði að og í mörgum tilvikum haft milligöngu um að erlendir sérfræðingar veittu íslenskum stjórnvöldum, þ.á.m Seðlabankanum, ráðgjöf í gjaldmiðils- og peningamálum fyrir bankahrunið. Þá bendir Heiðar Már á að eftir hrun hafi hann fengið bandaríska lögmanninn Lee Buchheit til landsins, strax í desember 2008, til að bjóða fram aðstoð við samninga um Icesave, en Buchheit var síðar ráðinn til að leiða samninganefnd Íslands í Icesave-deilunni. Heiðar Már segir í greininni í Fréttablaðinu að hann hafi ákveðið að höfða meiðyrðamál gegn DV til að fá fullyrðingar blaðsins dæmdar dauðar og ómerkar.
Mest lesið Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira