Viðskipti innlent

Deutsche Bank gerir nær 900 milljarða kröfur

Deutsche Bank er stærsti erlendi kröfuhafinn í þrotabú Kaupþing en kröfur hans nema nær 900 milljörðum kr. Eru þær því hátt í 15% af brúttókröfum í þrotabúið.

Stærstur hluti af kröfum Deutsche Bank eru í gegnum Deutsche Bank Trust Company Americas en samtals eru kröfurnar hátt í 50 talsins.

Af öðrum erlendum kröfuhöfum má nefna að Burlington Loan Management er með kröfur upp á 80 milljarða kr. í Kaupþing. Þetta írska skúffufyrirtæki er einn af stærstu kröfuhöfunum í þrotabú Glitnis.

Þá má nefna að Singer & Friedlander dótturfélag Kaupþings í London gerir kröfu upp á 145 milljarða kr. Og Singer & Friedlander á Mön gerir kröfu upp á 88 milljarða kr.




Tengdar fréttir

Kröfur í Kaupþing nema yfir 7.300 milljörðum

Heildarfjárhæð lýstra krafna í Kaupþing nam 7.316 milljörðum króna miðað við gengi Seðlabanka Íslands þann 22. apríl 2009. Heildarfjárhæð lýstra krafna er hærri en skuldir samkvæmt efnahagsreikningi miðað við 30. júní sl.

Sigurður vill 244 milljónir frá Kaupþingi

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, gerir launakröfu upp á 244 milljónir króna í þrotabú fallna bankans. Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri, virðist ekki gera launakröfu í þrotabúið.

Seðlabankinn með 356 milljarða kröfu í Kaupþing

Seðlabanki Íslands er með stærstu innlendu kröfuhöfunum í þrotabú Kaupþings en samtals nema kröfur hans rúmlega 356 milljörðum kr. Þar af er ein einstök krafa upp á 101 milljarða kr. vegna lánasamnings.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×