Viðskipti innlent

Lífeyrissjóðirnir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi

Línuritið er tekið af vefsíðu greiningar Íslandsbanka.
Línuritið er tekið af vefsíðu greiningar Íslandsbanka.

Þrátt fyrir að hrein eign lífeyrissjóðanna sé nú lægri en hún var fyrir hrun bankanna eru þeir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi. Hvergi í heiminum, fyrir utan Holland, er stærð sjóðanna jafnhátt hlutfall af landsframleiðslu.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í september 2008 nam eign lífeyrissjóðanna þannig 1.863 milljörðum kr. sem er ríflega 28 milljörðum kr. meira en hún var í lok september í ár.

Þrátt fyrir hrunið eru sjóðirnir enn stórir í alþjóðlegu samhengi. Nam hrein eign þeirra í ágústlok 122% af vergri landsframleiðslu síðasta árs. Í lok síðasta árs nam hrein eign lífeyrissjóðanna 119% af vergri landsframleiðslu. Hvergi í heiminum er þetta hlutfall hærra að Hollandi undanskildu en þar nam eign lífeyrisjóðanna 130% af VLF í lok síðasta árs samkvæmt heimildum efnahags og framfarastofnunar Evrópu, OECD. Að meðaltali námu eignir lífeyrisjóða OECD landanna 40% af VLF í lok síðasta árs.

Í lok september síðastliðnum hafði hrein eign lífeyrissjóðanna hækkað um 97,5 milljarða kr. frá sama tíma fyrir ári. Þar af hafði innlend verðbréfaeign hækkað um 132 milljarða kr en erlend verðbréfaeign hafði dregist saman um 18 milljarða kr á sama tímabili.

Að nafnvirði hafði hrein eign lífeyrissjóðanna því hækkað um 5,6% frá sama tíma í fyrra en sé tekið tillit til verðbólgu nam hækkunin 1,8%. Þar verður þó að hafa í huga að iðgjaldagreiðslur inn í lífeyrissjóði eru til muna hærri en lífeyrisgreiðslur og útflæði vegna innlausnar séreignarsparnaðar. Raunávöxtun sjóðanna er því minni en framangreind tala gefur til kynna.

Tekið skal fram að enn ríkir nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna og ber þess vegna að taka mati á hreinni eign sjóðanna með fyrirvara.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×