Lífeyrissjóðirnir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi 9. nóvember 2010 11:41 Línuritið er tekið af vefsíðu greiningar Íslandsbanka.
Þrátt fyrir að hrein eign lífeyrissjóðanna sé nú lægri en hún var fyrir hrun bankanna eru þeir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi. Hvergi í heiminum, fyrir utan Holland, er stærð sjóðanna jafnhátt hlutfall af landsframleiðslu. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í september 2008 nam eign lífeyrissjóðanna þannig 1.863 milljörðum kr. sem er ríflega 28 milljörðum kr. meira en hún var í lok september í ár. Þrátt fyrir hrunið eru sjóðirnir enn stórir í alþjóðlegu samhengi. Nam hrein eign þeirra í ágústlok 122% af vergri landsframleiðslu síðasta árs. Í lok síðasta árs nam hrein eign lífeyrissjóðanna 119% af vergri landsframleiðslu. Hvergi í heiminum er þetta hlutfall hærra að Hollandi undanskildu en þar nam eign lífeyrisjóðanna 130% af VLF í lok síðasta árs samkvæmt heimildum efnahags og framfarastofnunar Evrópu, OECD. Að meðaltali námu eignir lífeyrisjóða OECD landanna 40% af VLF í lok síðasta árs. Í lok september síðastliðnum hafði hrein eign lífeyrissjóðanna hækkað um 97,5 milljarða kr. frá sama tíma fyrir ári. Þar af hafði innlend verðbréfaeign hækkað um 132 milljarða kr en erlend verðbréfaeign hafði dregist saman um 18 milljarða kr á sama tímabili. Að nafnvirði hafði hrein eign lífeyrissjóðanna því hækkað um 5,6% frá sama tíma í fyrra en sé tekið tillit til verðbólgu nam hækkunin 1,8%. Þar verður þó að hafa í huga að iðgjaldagreiðslur inn í lífeyrissjóði eru til muna hærri en lífeyrisgreiðslur og útflæði vegna innlausnar séreignarsparnaðar. Raunávöxtun sjóðanna er því minni en framangreind tala gefur til kynna. Tekið skal fram að enn ríkir nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna og ber þess vegna að taka mati á hreinni eign sjóðanna með fyrirvara.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira