Atvinnurekendur gagnrýna frumvarp fjármálaráðherra harðlega 22. nóvember 2010 14:50 Frumvarp fjármálaráðherra fær óblíðar móttökur hjá atvinnurekendum.
Félag atvinnurekenda lýsir yfir furðu sinni á frumvarpi fjármálaráðherra um að ríkinu verði heimilað að semja beint við innkaupastofnanir erlendis um innkaup á rekstrarvörum. „Þar með ætlar ríkisvaldið að bregða sér í hlutverk heildsala og smásala, í staðinn fyrir að eiga viðskipti við verslunarfyrirtæki hér á landi. Viðbúið er að hundruð manna missi vinnuna ef þessar áætlanir ganga eftir," segir í yfirlýsingu frá samtökunum. Atvinnurekendur segja að tilgangur frumvarpsins sé sagður sparnaður í innkaupum fyrir ríkisstofnanir. „Einblínt er á möguleika þess að ganga inn í útboð erlendra innkaupastofnana á mörkuðum fyrir milljónir manna erlendis. Fullyrt er að enginn kostnaður fylgi þessum ríkisinnkaupum erlendis, alveg eins og vörurnar sjái sjálfar um að koma sér til landsins, staðsetja sig á lager og dreifa sér til notenda." Þá segja atvinnurekendur að frumvarpið sé fullkomlega vanhugsað. Jafnvel þótt ríkið geti keypt vörur og þjónustu erlendis á „heildsöluverði" sé sagan ekki nema hálfsögð. „Reikna þarf með kostnaði við flutninga, utanumhald, lagerhald, dreifingu, rýrnun, viðgerðarþjónustu, öryggismál, bókhald og annað það sem fylgir innflutningi og dreifingu." Atvinnurekendur segja ennfremur að hér á landi annist fjöldi fyrirtækja innflutning og sölu til opinberra stofnana í harðri samkeppni. „Þúsundir manna starfa hjá þessum fyrirtækjum. Skilaboð frumvarpsins eru að þekking og þjónusta þessa fólks skipti ekki máli; að ríkið geti tekið þetta að sér án nokkurs kostnaðar með því að færa störfin til útlanda. Skilaboðin eru: Ísland, nei takk." Félagið hvetur fjármálaráðherra til að draga frumvarpið „snarlega til baka."
Mest lesið Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Markaðurinn tók tíðindunum vel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Sjá meira