Vexti settar skorður í sjávarútvegi og orku 25. október 2010 02:15 Hagvöxtur og ný störf spretta tæpast upp úr þeim geirum sem oft er horft til, sjávarútvegi og orkugeira, að því er fram kemur í skrifum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Efla þarf fjárfestingu í öðrum geirum. Fréttablaðið/GVA
Fréttaskýring Hvaðan á hagvöxturinn að koma? Hagvöxtur hér á landi þarf nær örugglega að vera sprottinn af aukinni framleiðslu skiptanlegra gæða, en svo nefnist á máli hagfræðinnar varningur og þjónusta sem léttilega má flytja á milli landa. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. Í skýrslunni er dreginn fram ákveðinn vandi við að auka hagvöxt hér á landi. Skuldir þjóðarinnar og skorðurnar sem þær setja eftirspurn innanlands bendi til þess að umframgeta í framleiðslu óskiptanlegra gæða (vörur og þjónusta sem aðeins miðast við innanlandsmarkað) svo sem í byggingariðnaði verði ekki nýtt í bráð. Fram kemur að þótt fall krónunnar hafi aukið samkeppnishæfni útflutningsgeirans og dregið úr framleiðslukostnaði þá sé framleiðslugeta útflutningsgeira nærri hámarki. Það bendi til þarfarinnar fyrir nýja fjárfestingu, en þrengt sé að henni vegna fábreytni í framleiðslu. Sjávarútvegur og orkugeiri sé aðgreindur frá öðrum iðnaði og það bendi til þess að kostnaður við nýfjárfestingu við uppbyggingu á öðrum sviðum verði mikill. Nýfjárfesting sé þó ein uppspretta vaxtar þegar þjóðir séu að ná sér upp úr kreppu. Bent er á að ekki sé svo einfalt að auka framleiðsluna. Fiskistofnar séu takmörkuð auðlind og langan tíma taki að koma af stað orkufrekum verkefnum. „Brýn mál voru því að draga úr kostnaði við fjárfestingu á Íslandi og stytta tímann sem það tekur," segir í skýrslu sendinefndarinnar. Stjórnvöld eru sögð meðvituð um þörfina til að ýta undir fjárfestingu í útflutningsgeira og skoða með AGS leiðir til að gera það. Efst er þar á blaði fullt afnám gjaldeyrishafta og lok opinberra fjárhagsaðgerða sem aflétta myndu óvissu um regluverk viðskipta- og skattaumhverfis landsins. Þar á eftir kemur endurreisn fjármálageirans og úrlausn mála skuldugra fyrirtækja, sem myndi hjálpa til við að losa um fjárhagshömlur sem að öðrum kosti myndu draga úr nýfjárfestingu. Þriðja áhersluatriðið er svo að tryggja norrænt velferðarkerfi landsins, en með því yrði dregið úr landflótta - en með því að halda mannauðnum yrði dregið úr kostnaði við nýsköpun. Sendinefndin og stjórnvöld sjá þó bæði blikur á lofti hvað fjárfestingu varðar, að hluta til vegna hiks þegar kemur að erlendri fjárfestingu í viðkvæmum geirum, svo sem í orkuiðnaði, segir í skýrslu sendinefndarinnar. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Sjá meira