Lánuðu 800 milljarða til félaga sem voru ekki í rekstri Sigríður Mogensen skrifar 3. desember 2010 18:30 Kaupþing.
Kaupþing lánaði 800 milljarða til félaga um allan heim sem voru ekki í neinum rekstri. Talið er að einungis verði hægt að innheimta lítinn hluta þessara lána. Lánveitingarnar eru til rannsóknar hjá þrotabúi bankans og hluti þeirra einnig hjá sérstökum saksóknara. Á vegum skilanefndar Kaupþings starfar sérstök eftirlitsnefnd sem hefur meðal annars það verkefni að halda utan um þann hluta lánasafns þrotabúsins sem samanstendur af lánum, verðbréfum og viðskiptum sem eru til athugunar eða undir rannsókn og því ekki í formlegri innheimtu eða umsýslu. Viðskipti upp á 800 milljarða rannsökuð Fram kemur í kröfuhafaskýrslu bankans að í heild sé verið að rannsaka viðskipti upp á 800 milljarða króna. Með öðrum orðum lánaði bankinn 800 milljarða til félaga sem hafa engan undirliggjandi rekstur. Þetta er hálf landsframleiðsla Íslands og fimmtungur af heildarútlánum Kaupþings til viðskiptavina. Þetta eru lán veitt inn í flókin félög eða til eignarhaldsfélaga í engum rekstri. Lán eða viðskipti við tengda aðila, þar á meðal eigendur bankans, dótturfélög eða stjórnendur og önnur óvenjuleg lán eða viðskipti. Oft er um að ræða lán án veða eða trygginga. Fréttastofa hefur áður greint frá þessum lánveitingum en í hverju máli sem er til rannsóknar er fjöldi félaga allt frá einu og upp í 250. Í mörgum tilfellum er um að ræða skúffufélög og ná lánveitingarnar til skattaskjóla víða um heim. Eins og staðan er núna telur skilanefndin að tæplega 40 milljarðar innheimtist af þessum lánum, en það gæti batnað þegar rannsókn vindur fram en skilanefndin er undir það búin að leggja fram skaðabótakröfur og höfða mál í tengslum við lánveitingarnar. Það hefur verið gert í 11 málum. Slóðin köld í Lúxemborg Vinnan við að rekja slóð þessara fjármuna er gríðarlega flókin og í mörgum tilfellum verður hún köld í Lúxemborg og erfitt að nálgast frekari gögn og upplýsingar, að því er heimildir fréttastofu herma. Skilanefnd bankans ákvað nýlega að setja aukna krafta í rannsóknina en lögmannsstofan Grand Thornton í London tekur virkan þátt í henni. Rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Kaupþings byggir að miklu leyti á þessari rannsókn skilanefndar og er hluti umræddra lána til rannsóknar hjá embættinu.
Mest lesið Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Viðskipti innlent Davíð trónir enn og aftur á toppnum Viðskipti innlent Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Íslendingar aldrei verið ferðaglaðari Neytendur Sante fer í hart við Heinemann Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Viðskipti innlent Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Viðskipti innlent Afar ósátt við „óskiljanlega“ sekt Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Frama Viðskipti innlent Fleiri fréttir Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Ráðin framkvæmdastjóri Frama Afar ósátt við „óskiljanlega“ sekt Samkeppniseftirlitsins Taka sæti í framkvæmdastjórn Arctic Adventures Landsvirkjun sektuð um 1,4 milljarða fyrir að undirbjóða keppinauta Kalt stríð sé í gangi á netinu Sjö Airbus-þotur verða komnar í flotann í vetur Tvö fjölbýlishús í stað bensínstöðvar á Háaleitisbraut Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Róbert Aron og Einar Örn taka við rekstri Kolaportsins Forstjóri Kaldvíkur lét af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum Sjá meira