Viðskipti innlent

Þjónustuviðskipti jákvæð um 35 milljarða á þriðja ársfjórðungi

Útflutningur á þjónustu á þriðja ársfjórðungi 2010 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 97,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 62,0 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um 35,3 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samgöngur er stærsti þjónustuliður bæði í útflutningi og innflutningi og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 18,6 milljarðar.

Afgangur ferðaþjónustu var um 13,7 milljarðar og afgangur af annarri þjónustu um 3,0 milljarðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×