Erlendir líklega atkvæðamiklir í ríkisvíxlakaupum 14. maí 2009 12:07
Greining Íslandsbanka segir að líklegt sé að erlendir eigendur krónueigna hafi verið atkvæðamiklir í útboði Seðlabankans á ríkisvíxlum í gærdag. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að útboðið hafi tryggt ríkissjóði 20 milljarða kr. fjármögnun til næstu fjögurra mánaða á hagstæðari kjörum en lengi hafa sést á innlendum skuldabréfamarkaði. Gild tilboð í víxlana, sem hafa gjalddaga þann 15. september næstkomandi, námu ríflega 53 milljörðum kr. að nafnvirði. Meðaltal flatra vaxta var 5,74% í þeim tilboðum sem tekið var, en í útboði á 3ja mánaða ríkisvíxlum í apríl var meðaltal flatra vaxta 11,86%. Vaxtakostnaður ríkisins við útgáfu nýrra ríkisvíxla hefur því helmingast á rúmum mánuði. „Þetta hljóta að teljast jákvæð tíðindi fyrir ríkissjóð, sem stendur frammi fyrir verulegum vaxtagreiðslum til að standa straum af aukinni lántöku vegna fjárlagahalla næstu missera. Einnig hjálpar lág ávöxtunarkrafa í víxlaútboðinu nú til að minnka þrýsting á krónuna vegna vaxtagreiðslna til erlendra aðila í september," segir greiningin. Ljóst er að vaxtavæntingar á markaði útskýra tæplega niðurstöðu útboðsins í gær. Innlánsvextir á millibankamarkaði eru nú 7,75% til 3ja mánaða og 7,5% til sex mánaða. Þátttakendur í útboði gærdagsins hefðu því væntanlega getað nælt sér í talsvert hærri ávöxtun næstu mánuðina með innlánum í hérlendum fjármálastofnunum. Líklegt er að erlendir eigendur krónueigna hafi verið atkvæðamiklir í útboðinu í gær. Þessum aðilum er oft þröngur stakkur sniðinn varðandi þá ávöxtunarkosti sem þeir mega nýta sér hér á landi. Virðast þeir því sækjast í skammtímapappíra með ríkisábyrgð af miklu kappi og sætta sig við tiltölulega litla ávöxtun. Í ársáætlun Seðlabankans fyrir lánamál ríkissjóðs kom fram að ætlunin væri að draga úr útgáfu ríkisvíxla á árinu en verði framhald af slíkum viðtökum við víxlaútgáfunni teljum við hugsanlegt að sú áætlun verði endurskoðuð, sé á annað borð svigrúm til slíks.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira