Ástþór Magnússon: Vill kaupa gullforða Seðlabanka Íslands 20. september 2009 14:00 Ástþór Magnússon vill kaupa gull af Íslendingum. „
Við erum í þeim bissniss að kaupa gull af fólki," segir Ástþór Magnússon, eigandi Goldbank á Spáni en hann sendi seðlabankastjóranum Má Guðmundssyni bréf í dag þar sem hann býðst til þess að kaupa gullforða bankans. Um er að ræða tvö tonn af gulli sem íslenski Seðlabankinn á. Verð á gulli hefur ekki verið jafn hátt í heiminum í fjöldamörg ár. Gullbanki Ástþórs er tilbúinn að greiða 21 evru fyrir hvert gramm af gulli seðlabankans, það gera átta milljarðir íslenskra króna í allt. „Þetta er gott tækifæri enda gullmarkaðurinn sjaldan verið jafn hár," segir Ástþór um kostatilboð gullbankans. Aðalstarfsemi Goldbank er þó ekki að kaupa gull af hálf gjaldþrota ríkjum heldur kaupir hann gull af almenningi. Einstaklingar geta sent gull með DHL pósti til bankans í þar tilgerðum pokum þeir fá svo greitt fyrir. Gullið er brætt og svo selt aftur. Bankinn er staðsettur á Spáni en þar fer aðalstarfsemi hans fram. „En við erum náttúrulega ekki að fara bræða gullforða seðlabankans," segir Ástþór. Í bréfi sínu sem hann sendir Má segir meðal annars að nú sé lag að selja gullforðann, enda raunveruleg verðmæti fólgin í íbúum landsins. Aftur á móti er mikið atvinnuleysi og því nýtist sá styrkur illa, segir í bréfinu. Þar af leiðandi sé þjóðráð að selja gullið og fá reiðufé til þess að fjármagna aðgerðir gegn atvinnuleysinu. Bréfið var sent í dag og því ekki ljóst hvort Már sé búinn að fá það í hendurnar. Áður þurftu seðlabankar að eiga gullforða til þess að prenta peninga. Það er liðin tíð, nú er mikilvægasta eign flestra seðlabanka gjaldeyrisvaraforði. Þó eiga flestir seðlabankar enn eitthvað af gullforða. Heimasíða gullbanka Ástþórs er goldbank.eu.
Mest lesið SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir Viðskipti innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Viðskipti innlent Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Guðrún til Landsbankans Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Stefna á milljarð í veltu innan tveggja til þriggja ára Atvinnulíf Bætist í eigendahóp Strategíu Viðskipti innlent Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf SVÓT viðtöl við alla starfsmenn: „Gerðu þetta bara!“ Atvinnulíf Fleiri fréttir SVEIT muni afhenda öll gögn og ekki greiða dagsektir SVEIT sleppi ekki við milljónasektir Bætist í eigendahóp Strategíu Guðrún til Landsbankans Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Sjá meira