Viðskipti innlent

Landsvaki veiti upplýsingar um fjárfestingar peningamarkaðssjóðs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhann Hafstein, lögmaður Hjá Ergo lögmönnum.
Jóhann Hafstein, lögmaður Hjá Ergo lögmönnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að fyrrverandi framkvæmdastjóra og stjórnarmanni í Landsvaka hf. sé skylt að veita hópi fyrrum eigenda hlutdeildarskirteina í peningamarkaðssjóði Landsbankans upplýsingar um fjárfestingar sjóðsins.

Landsvaki hf. var dótturfyrirtæki Landsbankans og rak peningamarkaðssjóði bankans. Hópurinn krafðist upplýsinganna vegna þeirrar miklu skerðingar sem varð á eign þeirra þegar sjóðnum var slitið eftir hrun bankanna í október. Eigendur fengu einungis tæp 69% af eigum sínum greiddar til baka.

Í byrjun desember lagði lögmaður þessara aðila, Jóhann H. Hafstein, hjá ERGO lögmönnum, fram beiðni til Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem óskað var eftir skýrslutökum og að lögð yrðu fram gögn sem gætu skýrt fjárfestingar sjóðsins og hvort þær hafi farið á svig við kunngerða fjárfestingarstefnu hans og lög um fjárfestingarsjóði.

Sagði Jóhann að óljóst væri hvaða eignir sjóðurinn átti. Sá kostur hefði því verið nauðugur að senda beiðnina til héraðsdóms. Í dag féllst héraðsdómur á beiðni sjóðsfélaganna um að skýrslutökur skyldu fara fram.

Jóhann segist þegar vera búinn að stefna sjóðnum fyrir fjölda skjólstæðinga sinna og að fleiri málshöfðanir séu í undirbúningi sem þá munu taka mið af þeim upplýsingum sem fram koma í skýrslutökunum.

Þess má geta að umræddir aðilar hjá Landsvaka eru þeir Stefán Héðinn Stefánsson og Sigurður Óli Hákonarson sem hættu hjá bankanum í lok nóvember.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×