Reikna með 9,6% samdrætti í landsframleiðslu 20. janúar 2009 10:50
Í ár er gert ráð fyrir að landsframleiðslan dragist saman um 9,6%, þrátt fyrir áframhaldandi viðsnúning í þróun utanríkisviðskipta og aukinn þorskkvóta. Þá er gert ráð fyrir áframhaldandi stóriðjuframkvæmdum í Helguvík en með minni umsvifum árið 2009 en meiri árið 2010. Árið 2010 er spáð að landsframleiðslan standi í stað en einkaneysla dragist áfram saman. Þetta kemur fram í yfirliti fjármálaráðuneytisisn um stöðu þjóðarbúskpasins. Mat á stöðu ríkissjóðs er mikið breytt frá haustspá vegna áætlunar um meiri tekjusamdrátt, auknar skuldbindingar í tengslum við hrun bankakerfisins og umtalsverð útgjöld vegna vaxtakostnaðar og atvinnuleysisbóta á komandi árum. Árið 2008 er áætlað tekjuafkoma ríkissjóðs verði lítið eitt neikvæðari en í haustspá, eða 1,5% af landsframleiðslu þegar sumir tekju- og gjaldaliðir hækka frá fyrri spá á meðan aðrir lækka. Hinsvegar er spáð að afkoma ríkissjóðs snúist í mikinn halla árið 2009, eða um 12,3% af landsframleiðslu. Miðað við það mun ríkissjóður hafa umtalsverð sveiflujafnandi áhrif þegar þungi niðursveiflunnar er mestur. Sambærileg þróun átti sér stað í ríkisfjármálum Svíþjóðar í kjölfar bankakreppunnar þar í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir að hallinn minnki árið 2010 og verði 10,1% af landsframleiðslu. Lækkun á gengi krónunnar hefur orsakað aukna verðbólgu sem var 12,4% árið 2008. Áætlað er að verðbólga verði 13,1% árið 2009, sem er aukning um 7,4 prósent frá haustspá. Áætlað er að 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans verði náð árið 2010, þegar verðbólgan verði að meðaltali 2,7%. Viðskiptahalli á árinu 2008 er nú talinn mun meiri en í fyrri áætlunum, eða um 22,2% af landsframleiðslu, aðallega vegna mun óhagstæðari þróunar þáttatekjujafnaðar sem endurspeglar tekjuflæði milli landa af eignum innlendra og erlendra aðila hér á landi og erlendis. Spáð er að viðskiptajöfnuðurinn snúist í afgang sem nemi 6,1% af landsframleiðslu árið 2009 og 5,6% árið 2010, en slík þróun styður við endurreisn gjaldeyrismarkaðarins.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira