Viðskipti innlent

Ríkið bjargar DeCODE

Nýji Landsbankinn ætlar að kaupa bréf í deCODE Genetics að andvirði ellefu milljóna dala, eða sem samsvarar rúmum 1,4 milljörðum króna.

Samkvæmt samkomulagi milli fyrirtækjanna getur DeCODE óskað þess að Landsbankinn selji fyrirtækinu bréfin aftur fyrir 31. desember í ár. Landsbankinn getur hinsvegar farið fram á að deCODE kaupi bréfin aftur í árslok, að því gefnu að fyrirtækinu takist að selja tilteknar eignir.

Í frétt á heimasíðu deCODE segir að unnið sé að því að endurskoða reksturinn. Fyrirtækið telji að féð sem fæst með aðkomu Landsbankans dugi til að viðhalda rekstri fyrirtækisins fram á annan ársfjórðung og geri því þannig kleift að ljúka endurskoðun á rekstrinum án þess að þurfa að sækja fé annars staðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×