Ný jarðvarmaveita á vegum Enex Kína og Sinopec 11. nóvember 2009 15:28
Shaanxi Green Energy, félag í eigu Enex Kína og kínverska fyrirtækisins Sinopec Star hefur skrifað undir samkomulag við yfirvöld Xiong sýslu í Kína um uppbyggingu jarðvarmaveitu. Áætlað er að jarðvarmaveitan hiti um 250.000 fermetra af húsnæði á þessu ári og milljón fermetra 2010. Enex Kína er jarðhitafélag í eigu Geysis Green Energy (75%) og Reykjavik Energy Invest (25%). Í tilkynningu segir að hitaveitan mun hefja rekstur 15. nóvember í borginni Baoding í Xiong sýslu í Hebei héraði skammt suður af höfuðborginni Peking. Uppbygging hitaveitunnar er komin vel af stað en áætlað er að hita 250.000 til 300.000 fermetra húsnæðis á þessu ári og um eina milljón fermetra haustið 2010. Uppbygging og rekstur veitunnar er í höndum svæðisskrifstofu Shaanxi Green Energy (SGE) í Hebei héraði sem mun vinna að áframhaldandi þróun verkefnisins í Xiong sýslu en gert er ráð fyrir að stærð jarðvarmaveitunnar verði allt að þrjár milljónir fermetra fyrir 2012. Í Xiong sýslu búa um 354.000 manns og þar er að finna lághitasvæði þar sem hitastig vatns er á bilinu 55-86°C á 500-1500 metra dýpi. Þegar jarðvarmaveitan hefur rekstur munu loftgæðin á svæðinu aukast þar sem að vanalega er notast við kolakyndingu. Með því að draga úr notkun kolakyndingar minnkar útblástur gróðurhúsalofttegunda og því getur verkefnið notið kolefniskvóta sem eykur arðsemina af rekstrinum. Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður Enex Kína og forstjóri Geysis Green Energy, segist afar ánægður með samstarfsvilja stjórnvalda á svæðinu og það jákvæða fordæmi sem yfirvöld í héraðinu sýna til að stuðla að hreinna umhverfi. Verkefnið muni ryðja veginn fyrir SGE og Enex Kína til þess að takast á við uppbyggingu enn fleiri jarðhitaverkefna í Hebei og öðrum héruðum í Kína. Jiang Zhu, svæðisstjóri Geysis Green Energy í Asíu segir samkomulagið marka þáttaskil í Xiong sýslu og sem annað verkefni SGE sýnir það staðfestu beggja eigenda [Enex Kína og Sinopec] til frekari virkjunar jarðhita í Kína af fullum krafti. Shaanxi Green Energy (SGE) var stofnað árið 2006 af kínverska olíufélaginu Sinopec (51%) og Enex Kína (49%) til sameiginlegrar uppbyggingar jarðvarmaveitna í Kína. Enex Kína sem er í eigu Geysis Green Energy (75%) og Reykjavik Energy Invest (25%) setti á fót skrifstofa í Kína árið 2005 og síðan þá hefur félagið unnið að uppbyggingu jarðvarmaveitu í Xianyang borg í Shaanxi héraði. Jarðvarmaveitan í Xianyang hitar nú upp um 1.2 milljón fermetra húsnæðis (100 MWth) og hefur verið í rekstri síðan 2006. Sú veita jafnast á við hitaveituna i Reykjanesbæ að umfangi og kemur í veg fyrir losun 48.000 tonna koldíoxíðs árlega samanborið við kolakyndingu. Íslenskar verkfræðistofur, m.a. Verkís og ÍSOR hafa unnið að verkefnum Enex Kína sem koma til með að aukast á næstunni enda eru fleiri samskonar jarðhitaverkefni í farvatninu þar sem Kína býr yfir miklum jarðhita sem nýta má til húshitunar. Starfsemi á vegum Geysis og Enex Kína í Kína hefur verið sameinuð og er aðsetur starfseminnar í Shanghai.
Mest lesið Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Sjá meira