Neytendasamtökin fordæma Nýja Kaupþing opinberlega 11. nóvember 2009 12:09 „
Þar sem Neytendasamtökin eru nú orðin úrkula vonar um að þeim berist svar sjá þau sig knúin til að fordæma verklag bankans opinberlega." Þetta segir í frétt á vefsíðu Neytendasamtakanna. Ástæða þessara orða er sú að hingað til hefur Nýja Kaupþing í engu svarað ítrekuðum fyrirspurnum frá samtökunum um lánaskilmála sína á gengistryggðum lánum. Á vefsíðunni segir að samkvæmt niðurstöðu Neytendastofu og síðar áfrýjunarnefndar neytendamála braut Kaupþing lög um neytendalán með því að tiltaka ekki í lánaskilmálum með hvaða hætti vextir á gengistryggðum lánum væru breytilegir og við hvaða aðstæður þeir gætu breyst. Þar sem málið var tæpt ár í vinnslu Neytendastofu og áfrýjunarnefndar töldu Neytendasamtökin fyrirséð að bankinn hefði undirbúið einhver andsvör, að einhver yfirlýsing myndi birtast frá bankanum, um það hvernig hann hyggðist bæta lántakendum það tjón sem lögbrotin hefðu valdið. Neytendasamtökin sendu Nýja Kaupþingi erindi hinn 1. október sl. fyrir hönd lántakenda og óskuðu eftir upplýsingum um það með hvaða hætti bankinn hygðist bæta lántakendum tjónið. Erindið var ítrekað 16. október en engin viðbrögð hafa borist frá bankanum. Fyrra erindið var sent á yfirmann lögfræðisviðs, yfirmann viðskiptabankasviðs og bankastjóra. Seinna erindið var sent beint á persónulegt netfang bankastjóra. „Enginn þessara aðila hefur séð tilefni til að svara. Neytendasamtökunum þykir ótrúlegt að banki í eigu ríkisins, banki sem gefur sig út fyrir að vera annt um hag viðskiptavina sinna, sjái hvorki tilefni til að svara erindum samtakanna, né senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Sérstaklega í ljósi þess að stjórnvöld hafa komist að þeirri niðurstöðu að bankinn hafi gerst sekur um lögbrot," segja Neytendasamtökin.
Mest lesið Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira