Viðskipti innlent

MP Banki hf. fær bankanúmerið 700

Fjármálaeftirlitið veitti MP Banka hf. viðskiptabankaleyfi þann 10. október sl. Leyfið var í fyrstu veitt til 31. desember 2008. Eftir frekari samskipti FME og MP Banka hf. hefur bankinn nú fengið staðfest viðskiptabankaleyfi.

Í tilkynningu segir að MP Banki hefur í kjölfar leyfisveitingarinnar samið um aðgang að kerfum Reiknistofu bankanna og fengið úthlutað bankanúmerinu 700. Samhliða hefur bankinn gerst aðili að stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands og jöfnunarkerfi Fjölgreiðslumiðlunar.

MP Banki hf. var stofnaður árið 1999, fékk starfsleyfi sem fjárfestingarbanki árið 2004 og starfsleyfi sem viðskiptabanki í október 2008 sem var staðfest nú fyrir áramót eins og áður segir.

Viðskiptabankaleyfið gerir MP Banka kleift að veita viðskiptavinum sínum aukna og víðtækari þjónustu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×