Viðskipti innlent

Krónan heldur áfram að styrkjast

Krónan hélt áfram að styrkjast í dag og lækkaði gengisvísitalan um 1,3%. Hefur því þróunin á gjaldeyrismarkaðinum frá í síðustu viku haldið áfram að krónan styrktist um rúm 4% í síðustu viku.

Jón Bjarki Bentson hjá greiningardeild Glitnis segir aðspurður um þróunina á gjaldeyrismarkaðinum að vangaveltur hafi verið uppi í síðustu viku um inngrip af hálfu Seðlabankans.

Þær vangaveltur sem Jón Bjarki vísar hér er eru um að Seðlabankinn hefði sett eitthvað af gjaldeyrissjóði sínum inn á markaðinn til að styrkja gengi krónunnar.

Jón Bjarki nefnir einnig aðra hugsanlega skýringu sem er að útflytjendur séu í auknum mæli að setja gjaldeyri sinn á markaðinn. Skilaskylda er á gjaldeyri en ekki söluskylda. Það þýðir að þeir sem geta aflað sér gjaldeyris eru ekki neyddir til að selja hann heldur geta geymt hann í bönkunum á gjaldeyrisreikningum.

"Og á þessum reikningum eru menn ekki að fá neina vexti þannig að þeir sjá fé sitt rýrna og eru því væntanlega viljugri til að selja gjaldeyri sinn," segir Jón Bjarki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×