Skuldatryggingaálag Íslands hefur lækkað töluvert í mars 25. mars 2009 12:27
Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins hefur verið að lækka allnokkuð núna í marsmánuði. Álagið til fimm ára sem stóð í um 1.080 punktum í byrjun mánaðarins er komið niður í 892 punkta nú. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að lækkunin merki að fjárfestar telja minni líkur á því að ríkið lendir í greiðslufalli. Lækkunin er í takti við alþjóðlega þróun en skuldatryggingaálag ríkja hefur almennt verið að lækka í mánuðinum. Er það talið merki um minni áhættufælni og að bankakreppan hafi hugsanlega snert botninn fyrr í mánuðinum. Þess má geta að skuldatryggingaálag íslenska ríkisins fór úr tæplega 400 punktum í tæplega 1.500 punkta við hrun bankanna í byrjun október í fyrra. Þrátt fyrir lækkun síðustu vikna er skuldatryggingaálag íslenska ríkisins enn hátt í samanburði við önnur ríki. Ef það er borið saman við skuldatryggingaálag annarra þróaðra ríkja þá er það Írland sem kemst næst hinu íslenska en álag þess stendur nú í 220 punktum. Þar á eftir kemur Grikkland (170), Austurríki (150), Ítalía (144) og Bretland (110).Samkvæmt þessu er ljóst að fjárfestar telja mun meiri líkur á því að íslenska ríkið lendi í greiðslufalli en önnur þróuð ríki. Íslenska ríkið finnur sína líka mun frekar á meðal ríkja Austur- Evrópu og þá þróunarríkja í þessu sambandi en skuldatryggingaálag Úkraínu er í 3.797, Kasakstan í 1.104 og Lettlands í 917. Skuldatryggingaálag þessara ríkja hefur einnig verið að lækka allnokkuð undanfarið.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl Sjá meira