Icelandair veitir viðurkenningu fyrir met í stundvísi 17. apríl 2009 09:21 Myndin var tekin þegar Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdasstjóri Icelandair, afhenti Ástþóri Ingasyni, forstöðumanni stöðvareksturs Icelandair, viðurkenninguna í stjórnstöðinni á Keflavíkurflugvelli í dag. Myndina tók Hilmar Bragi.
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, hefur afhent starfsfólki stjórnstöðvar Icelandair á Keflavíkurflugvelli viðurkenningu fyrir nýtt met í stundvísi félagsins. Á fyrstu þremur mánuðum ársins komu og fóru farþegaþotur Icelandair á réttum tíma í 92,6% tilvika. Í tilkynningu segir að fyrra metið var sett árið 2003 en það var 84,7% stundvísi. Meðaltal hjá flugfélögum innan Samtaka evrópskra flugfélaga, AEA, var 68,3% til 80,4% eftir lengd fluga á þessum sama árstíma á síðasta ári. "Stundvísi er einn af höfuð áhersluþáttum í rekstri Icelandair", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair. "Utanaðkomandi óviðráðanlegir þættir eins og veður, önnur flugumferð og bilanir hafa jafnan áhrif á stundvísina og hvað þetta varðar höfum við verið heppin í vetur. En við hjá Icelandair höfum einnig gert átak til að auka stundvísi og á síðasta ári tók til starfa ný stjórnstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli, sem hefur það m.a. að markmiði að reka leiðakerfi félagsins frá degi til dags, fyrirbyggja hugsanlegar tafir og bregðast hratt við óvæntum uppákomum. Við sjáum góðan árangur af þessum breytingum og þessar stundvísitölur Icelandair í vetur eru fáséðar hjá flugfélögum." Stundvísi flugfélaga er mæld með þeim hætti að ef innan við 15 mínútur líða á milli áætlunartíma og raunverulegrar brottfarar frá hliði telst flugvélin hafa farið á réttum tíma. Flestar seinkanir eru innan við 30 mínútna langar.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira