Viðskipti innlent

Meðaltekjur eru 5,6% lægri nú en á sama tíma í fyrra

Meðaltekjur Íslendinga eru 5,6% lægri í ár en á sama tíma í fyrra. Það stafar af minnkuðu vinnuframlagi.

Þetta kemur fram í nýjasta vefriti fjármálaráðneytisins. Þar segir að af staðgreiðslugögnunum má sjá að efnahagsáfallið hefur komið mjög mismunandi niður á kynjunum. Þannig hafa meðaltekjur karla lækkað um 6,2% milli ára meðan þær hafa hækkað um 8,2% hjá konum

Tekjur hafa hækkað að meðaltali hjá þeim sem voru með mánaðarlaun undir 300 þúsund krónum fyrstu fjóra mánuði ársins 2008 en lækkað hjá þeim sem voru með tekjur þar fyrir ofan og því meira sem þær voru hærri.

Um það bil fjórðungur launamanna er nú með innan við 90% af tekjum fyrra árs meðan þriðjungur hefur 10% meiri tekjur en þá og þaðan af meira. Það eru fleiri skýringar en launahækkanir á hækkun þeirra sem voru með litlar tekjur árið 2008. Í þessum hópi eru til dæmis þeir sem þá stunduðu hlutastörf með námi en eru nú í fullri vinnu.

Laun þeirra sem voru með yfir 1 milljón kr. á mánuði árið 2008 hafa lækkað um 27% að meðaltali milli ára. Það skal tekið fram að inni í staðgreiðslugögnum eru ýmsar skattskyldar greiðslur sem ekki er víst að séu reglubundin laun, t.d. útgreiðsla séreignarsparnaðar á árinu 2009. Þetta hefur þó ekki mjög mikil áhrif á heildartölur.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×