Veruleg svartsýni meðal stjórnenda fyrirtækja 11. júní 2009 16:02
Niðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup meðal stærstu fyrirtækja landsins liggja nú fyrir. Telja stjórnendur 97% þeirra fyrirtækja sem svara könnuninni að aðstæður séu nú mjög slæmar (62%) eða frekar slæmar (35%), en ekkert fyrirtæki telur þær góðar. Þetta kemur fram í nýjasta fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins. Þar segir að í síðustu könnun sem gerð var í marsmánuði örlaði á bjartsýni um að aðstæður í efnahagslífinu myndu fara batnandi þegar horft væri hálft til eitt ár fram í tímann. Sú bjartsýni hefur nú að mestu horfið og telur meirihluti fyrirtækjanna (56%) að aðstæður verði verri eftir 6 mánuði, en aðeins 12% að þær verði heldur betri. Að öðru leyti lýsa niðurstöður könnunarinnar að þessu sinni að mestu ámóta slæmri stöðu í atvinnulífi og fram kom í samsvarandi könnunum í mars 2009 og desember 2008. Nægt framboð vinnuafls er til staðar hjá rösklega 90% þeirra fyrirtækja sem svara könnuninni og fyrirtæki eru almennt ekki að ráða fólk til starfa. Um 90% þeirra fyrirtækja sem svara könnuninni telja að á næstu sex mánuðum muni starfsmannafjöldi hjá þeim standa í stað (54%) eða fækka (36%). Það vekur að vísu athygli að fjórðungur fyrirtækja í fjármála- og tryggingastarfsemi telja sig skorta starfsfólk og um fimmtungar býst við að ráða fólk á næstu sex mánuðum. Hér verður þó að hafa í huga að fjármálafyrirtæki eru almennt undir miklu álagi um þessar mundir, starfsemi þeirra hefur breyst mikið á skömmum tíma og flest hafa þurft að segja upp starfsfólki. Er því skiljanlegt að sum fyrirtækjanna telji sig skorta starfsfólk. Þá hafa a.m.k. sum smærri og miðlungsstórra fyrirtækja í greininni aukið starfsemi á vissum sviðum og skýrir það væntanlega að mestu áform um fjölgun. Hafa þarf í huga að hlutfallstölur í könnuninni byggjast á fjölda fyrirtækja. Um 40% fyrirtækja búast við að eftirspurn á innlendum markaði muni enn dragast saman á næstu sex mánuðum, en aðeins 18% að hún muni aukast. Það eina sem má teljast jákvætt í þessari könnun er að stjórnendur meta horfur á erlendum mörkuðum ívið skárri en í mars, en þó er óvíst hvort um marktæka vísbendingu er þar að ræða.
Mest lesið Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Samstarf Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Sjá meira